Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1907, Qupperneq 34
B6
að því vísu, aðra skýringu á þessu bæjarnafni hafa menn ekki getað
hugsað sér. En nú hefir dr. Björn M. Olsen skýrt mér frá því, að
í Norvegi séu mörg staðanöfn mynduð af orðinu váll, sem er »rjóð-
ur í skógi myndað við bruna« og »þar sem stofnar standa eftir af
brendum skógi«, og þar af sé myndað í smækkaðri merkingu orðið
»væla«, sem er lítið brunarjóður. Og þar eð Vælugerðismýri var
skógland fyrrum, þá hyggur hann, að bæjarnafnið sé myndað af
slíku brendu smárjóðri. Þessa skýringu fellst eg á. Þó það hafi að
líkindum ekki tíðkast hér á landi að ryðja skóg með bruna, — þess
þurfti ekki, — þá gat það þó komið fyrir af atvikum, t. a. m. af
eldi úr kolagröf, eins og sagt er frá um ölkofra. Það er því frem-
ur ástæða til að taka upp þessa skýringu, sem mjög er hæpið að
halda sér við viðurnefni Arnar. Það er ekki að finna í fornritun-
um og eg hefi ekki séð það nema í einu handriti Flóamannasögu,
heldur nýlegu, en raunar með fornlegri stafsetningu. Mundi eg hafa
lagt minni áherzlu á viðurnefnið, ef eg hefði fyr þekt orðið »væla«,
og er mér nú einna næst skapi að hafa »endaskifti á efninu« og
hugsa mér viðurnefnið myndað af bæjarnafninu fyr eða síðar á thn-
um. Er eg dr. Birni M. Olsen mjög þakklátur fyrir þessa leiðbein-
ingu, eins og margar fleiri.
X.
Á bls. 28 hefi eg tekið það fram, að bæjarnafnið Kaldárholt
bendi á, að þeim megin hefði Þjórsá í fyrstu verið kölluð Kaldá.
En nú hefi eg séð í Eornbréfasafni II. 87, að i Oddamáldaga er sá
bær nefndur Kallaðarholt (= Kallanarh.). Og sé það rétt, er málið
fallið. En nokkur ólíkindi eru á því, að það sé rétt. Orðið »kall
an« í bæjarnafninu á víst að tákna ferjukallan. Og ekki er ómögu-
legt, að hæfur ferjustaður hafi fyrrum verið á ánni hjá Kaldárholti;
hún gat þá runnið í einu lagi fram með túninu, þó nú sé hún í
mörgum kvíslum. En sé "staður kendur við ferjukallan, þá er það
af því, að menn standa þar, er þeir kalla ferju. Ferjubærinn verð-
ur þá að vera hinum megin við ána og ekki oflangt frá henni. En
á öllu svæðinu móts við Kaldárholtsland eru bæirnir vestanmegin
svo langt frá ánni, og hafa altaf verið, að eigi er ætlandi, að ferjað
hafi verið frá neinum þeirra. Kaldárholt sjálft hefði orðið að vera
ferjubærinn, og þá þurfti ekki að kalla ferju þeim megin, heldur
hinum megin. Annars eru bæjanöfn í máldaganum eigi höfð réttari
en svo, að naumast er fjarstæða að efast um áreiðanleik þessa bæjar-
nafns, þar eð likurnar eru á móti því.-