Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1907, Blaðsíða 37
Fornleifafundir,
Eftir
Brynjúlf Jónsson
I. Fornleifafundur í Galtafelli 1907.
í vor 1907, byggði Jakob bóndi Jónsson nýtt íbúðarhús i Galta-
felli við hliðina á hlöðunni sem byggð var þar vorið 1904 og sagt
er frá í Árb. 1906, bls. 31—2. Kjallari var gjör undir íhúðarhús-
inu, og er graflð var fyrir honum fundust byggingaleifar, sem auð-
sjáanlega voru framhald hinna, sem fundust 1904 er graflð var fyr-
ir hlöðunni. Eigi náði kjallaragröfin að vísu saman við hlöðuna,
þar var skilin eftir moldarbrík á milii. Þá er grafið liafði verið
nær 2 áln. niður, varð fyrir austan megin í gröfinni 1—1 '/4 al. þykkt
lag af fjósamykju. Efst var hún blandin smágrjóti sem helzt leit
út fyrir að hafa mulist ofan í hana. En þá er lengra kom niður í
hana, var hún hrein og sumstaðar nokkuð blaut, einkum norðan til
Eigi náði hún að moldarbríkinni, en þar innst í horninu varð fyrir
dálítil hrúga af viðarkolum. Undir mykjulaginu var moldarlag rúml.
Vé al. þykkt, en undir því var alstaðar hörð gólfskán öskublandin.
Framan við gólfskánina og mykjuna voru leifar af grjótvegg. Dá-
lítið var grafið framfyrir hann, þvi hann lá nokkru innar enn nú
er bæjarröndin. En þar var alstaðar óhreifð mold fyrir og ekkert
annað. Veggurinn lá eftir endilangri kjallaragröfinni og hvarf að
norðvestanverðu í moldarbríkina, sem eftir var skilin. Eftir stefn-
unni hlaut hann að vera framhald veggjarundirstöðu þeirrar, sem
fannst þá er fyrir hlöðunni var grafið. Hér var hann 3 lög á hæð
tvíhlaðinn úr vel völdum stuðlabergs steinum, er snéru endunum
inn í vegginn. Hlið eða dyr voru á veggnum nær suðausturenda
kjallai’ans. Hinum megin þeirra sást veggurinn aftur, en þá var
ekki grafið lengra í þá átt. Fram um dyrnar lá ræsi eða renna,
rúml. 1 fet á dýpt en lítið yfir '/2 fet á vídd. Hún var svo vel
hlaðin, að hún hafði ekkert haggast nema að burtu voru liellur þær