Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1907, Page 39
41
við aðra svo haglega, að þær mynduðu samfelda veggi. Þær voru
næstum jafnstórar — auðvitað ekki alveg jafnar. — Hæð þeirra var
um 2x/a—2®/é al., breidd litiu minni og þykkt nál. 3 þuml. Þær
stóðu fastar og óhaggaðar. Alstaðar utan að þeim lá óhreifð mold;
sást i henni svart vikurlag, sem þar sést víðast í jarðvegi. Innan
í tóftinni sást það ekki. í þremur hornum tóftarinnar voru hlóð
niður við gólf og viðaraska í. Við hlíðina á hverjum hlóðum, til
hægri handar er við þau var staðið, var kolaþró af uppreistum
hellum og viðarkol í. í norðvestur horninu voru engin hlóð eða
neitt annað. Á austurveggnum er að bænum vissi voru dyr, eða
þar vantaði eina hellu í röðina, en innan við þær tvær hellurnar,
sem næstar voru sín hvoru megin, stóðu drangasteinar fast niður
settir og nálega jafn liáir hellunum. Innan við þá stóð upp laus
hella, sem hún skyldi vera hurð. Hún var 3 áln. há, l1/^ al. breið
og 3 þuml. þykk. Mest alt gólf tóftarinnar var alsett smáholum,
svo sem 8—10 þuml. djúpum og lx/2 þml. víðum. í sumum þeirra
var fúaspíta, en sumar voru tómar. Engar leifar af spítum sáust í
moldinni fyrir utan. Mun stöfum þeim, er í holunum hafa staðið,
hafa verið kippt burt er tóftin var fyllt, en sumir þeirra verið svo
fastir, að þeir hafa þá brotnað niður við gólflð. Svo voru holurnar
þéttar, að hvergi var fet milli þeirra, en ekki var millibilið alstað-
ar jafnt. Eigi voru þær taldar en ærið voru þær margar. Hvergi
náðu þær út að veggjum, var þar alstaðar ríflegt gangrúm á milli.
Og nær J/4 af gólfinu við suðurendann var holulaus. Þar hjá suð-
austur hlóðunum var helmingur af steinkeri úr grófum, ljósgráum
sandsteini. Það virtist hafa verið ílangt og brotnað eftir endilöngu
Sá hlutinn sem fanst var 16 þuml. langur innan barma. En útlit
fyrir, að hinn hlutinn hefði verið heldur stærri. Af honum fanst
ekkert. Þessi hlutinn var brotinn og í þrem pörtum. Verða þeir
geymdir að sinni, ef Forngripasafnið kynni að vilja fá þá. Ekki
sást að veggirnir hefðu verið hærri en hæð hellnanna. En það er
ekki að marka. Þó ofan á þær hefði verið bygt, má gjöra ráð fyr-
ir, að sú hækkun hafi öll verið tekin burtu, þá er tóftin var fylt og
öllu hleyft upp og jafnað yfir áður ofan á var bygt að nýju.
Ekkert sýnist mér fullyrðandi um það, til hvers þetta hús hef-
ir verið haft. Helzt hefir mér dottið í hug, að það kunni að hafa
verið þvotta- og þurkunarhús. Steinkerið hafi verið þvottaker, og
staíirnir sem í holunum hafa staðið, hafi verið hafðir til að þurka
þvottinn á, hann hafi þornað við hitann frá hlóðunum, en þar sem
holulaust var, á suðurenda gólfsins, hafi verið unnið að þvottinum.
6