Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1907, Síða 50

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1907, Síða 50
52 og skal tiltaka staðinn svo nákvæmloga, sem unt er. Nú kemst fornmenjavörður að raun um, að fornleifar, scm hann telur nauðsyn á að friða, séu til á einhverjum stað, og skal hann þegar taka þær á fornleifaskrá. 6. gr. Allar þær fornleifar, sem á fornleifaskrá standa, skulu friðaðar, og sér stjórnarráðið um, að friðhelginni sé þinglýst á því þingi, er hver einstök fornleif liggur til. Friðhelgi telst frá þinglýsingardegi. Ef landeigandi eða ábúandi verður fyrir nokkru tjóni við það að friðhelgi er á lögð, skal greiða. skaðabætur úr landssjóði. Nú rís ágreiningur milli þess, er hlut á að máli, og stjórnarráðsins um það, hvort nokkrar skaðabætur skuli greiða eða um upphæð skaðabóta, og skulu óvilhallir, dómkvaddir menn skera úr því máli. Skaða- bótakröfur skulu komnar til stjórnarráðsins, áður en 4 mánuðir eru liðnir frá þinglýsingardegi, ella falla þær niður. 7. gr. Allar lausar fornleifar, sem taldar eru í 3. grein og eru eldri en 150 ára, eru friðaðar án þinglýsingar, og eru eign landsins. Fornleifar þessar skal setja á sérstaka skrá, svo fijótt, sem þvi verður við komið. 8. gr. Friðuðum fornleifum má enginn, hvorki landeigandi né ieigu- liði né nokkur annar, spilla, granda né breyta, laga né aflaga né úr stað flytja, nema leyft sé í lögum þesum, og skal þá fara eftir þeim reglum, sem lögin setja. 9. gr. Skyldur er ábúandi eða leiguliði að gjöra lögreglustjóra við vart, ef friðuð fornleif liggur undir skemdum af völdum náttúrunn- ar eða er skemd af manna völdum. Gjörir þá lögreglustjóri þær bráðabirgðar-ráðstafanir, sem þarf, til að varna skemdum, og skýrir þegar stjórnarráðinu frá málavöxtum, en stjórnarráðið ákveður með ráði fornmenjavarðar, hvað gjöra skuli. Aðgjörðin greiðist úr lands sjóði, nema skemdin sé af manna völdum; þá greiðir sá, er skemdi. Vilji landeiðandi eða leiguliði gjöra jarðrask það nokkuð, er haggar við friðuðum fornleifum, eða gjöra nokkuð það, er þeim geti spilt, skal hann skýra lögreglustjóra frá þvi og um leið lýsa forn- leifunum og gjöra skýra grein fyrir þeim breytingum, er hann vill

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.