Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Síða 18
16
Ferðalag
Marðar.
reið hvora leið, til næstu vatnanna, þó að farin væri beinasta leið, t. d.
úr Jökuldölum.
„Höfundurinn nefnir Fiskivötnin viljandi", segir dr. E. Ó. Sv.
Höf. Nj. nefna þau viljandi af því að þeir vita, að arfsögnin um
ferðalag Flosa var rjett. Þeir vita, að Fiskivötn voru stutt frá leið
Flosa, og þeirra, er fóru Mælifellssand. Það eru aðrir, sem hafa
hugsað sjer þau á „röngum“ stað, af ýmsum ástæðum, m. a. þeirri,
að því er virðist, að það sjáist „greinilega“, að höf. Njálu sjái Fiski-
vötn úr Skaftafellssýslu!1) (Sbr. „U. N.“, bls. 367).
Dr. E. Ó. Sv. álítur, að ferðalag Marðar Valgarðsson-
ar eftir víg Höskulds Hvítanesgoða sanni það, að
höf. Njálu sjeu „fjarlægðir ekki full-ljósar“, og að
þeir „horfi á staði úr svo miklum fjarska, að þeir færist nær hver
öðrum að sýn“. („U. N.“, bls. 355). Jeg skal nú athuga þetta ferða-
lag Marðar dálítið, og sýna fram á, að hann hafði nægan tíma til
þess, — að fara heim að Hofi frá Vörsabæ, og þaðan til Grjótár —
þó að dr. E. Ó. Sv. finnist það gagnstæða „augljóst". Af sögunni er
það ljóst, að Mörður hefur verið búinn að ákveða tilhögun alla um
ferðalag sitt og smalamanns síns, áður en hann fór til vígsins. Smala-
manninn, sem hann sendir til Vörsabæjar til að njósna um „hversu
skjótt þau taki til ráða“ hefur hann í hæfilegri fjarlægð, svo hann
geti mætt Njálssonum, er þeir fara frá víginu, og komið til Vörsa-
bæjar þeirri orðsendingu Skarphjeðins, að hann „lýsti víginu á hönd
sér“. Mörður hefur vafalaust sjeð fyrir því eins og öðru í þessu ferða-
lagi, að vera vel ríðandi, og strax eftir vígið ríður hann heim sem
skjótast, og síðan, að því er virðist, samstundis austur að Grjótá.
Hann fer vitanlega eins hratt yfir og unnt er, til þess að vera viss
um að geta komið því til leiðar, að Þorgerður á Grjótá, móðir Hösk-
uldar, beiddi sig að lýsa víginu. Milli Vörsabæjar og Hofs eru ca.
141/2 km. og milli Hofs og Grjótár ca. 11% km. Fyrri vegalengdina
getur hann farið á 1 kl.st., en til að vera ríflegur, ætla jeg honum 30
mínútur í viðbót. Ekki verður það talið líklegt, að sendimaður Hildi-
gunnar hafi farið af stað upp til Grjótár fyr en 2% klst. eftir vígið
í fyrsta lagi. Kemur þar fyrst til greina, hversu lengi Hildigunnur
svaf eftir að Höskuldur var veginn, því að þegar hún vaknar, biður
hún heimamenn að leita hans um bæinn meðan hún klæði sig, en
1) Jeg tel það alveg tvímælalaust, að Fiskivötn sje forna nafnið á vötn-
unum í Rangárþingi. Vciðivatna-nafmS hygg jeg vera aðallega runnið frá þeim
manni í Landsveit, er falsaði afritið af dómnum frá 1476 (sbr. hjer að framan)
á síðari hluta 19. aldar. — Það er ekki nema eðlilegt, að Skaftfellingar nefni
-vötnin sama nafni — Fiskivötn — og var á þeim vötnum hjá Bláfjalli. —
Björn Gunnlaugsson nefnir vötnin Fiskivötn í ritgerð 1861.