Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Blaðsíða 41
35
ana? Þessari spurningu svara jeg með því að vísa til hins fræga
draums Hermanns Jónassonar um Njálu.
Draummaður hans, Ketill í Mörk, segir, að síðari hlutinn af sögu
Höskuldar Hvítanessgoða hafi glatazt, einmitt sá hlutinn, er segir
frá aðdragandanum að vígi Höskuldar. Svo hafi sá, er ritaði söguna,
búið það til (skáldað inn í hana), að „Mörður hafi komið drápi Hösk-
ulds til leiðar með rógi, en til þess að gera það sennilegt og skáld-
legt, býr hann til viðtal og ráðagerð þeirra feðga, Valgarðar grá og
Marðar, og lætur Mörð koma víða við í Gunnarssögu, svo sem þann
manndjöfull, er sagan lýsir“. „En þetta eru ósannindi", segir draum-
maður, „eins og hver hugsandi maður ætti að geta séð,.. sum
klækjaráð Marðar verða að gerast, þegar hann er barn að aldri.
Hann var innan við tvítugt, er Gunnar Hámundarson var veginn, og
við víg hans er hann sökum þess, að hann varð að fylgja Gissuri
hvíta“. (H. J. Draumar, bls. 47.). Allt er þetta mjög sennilegt, eins
og annað í þessum merkilega draumi, og miklu sennilegra en frá-
sögnin í Njálu um þessa atburði.1) Þetta er því ekki á neinn hátt
því til fyrirstöðu, að Oddaverjar hafi farið huga og höndum um
frumdrætti sögunnar.
Jeg vil taka undir það, sem dr. E. Ó. Sv. segir í „Sagnaritun
Oddaverja“, að „það væri gaman“ að vita eitthvað um innlendu fræðin
í Odda frá tímum Oddaverja. Mín trú og skoðun er sú, að þá mundi
bregða birtu yfir ýmislegt, sem nú er í myrkrum hulið — og verður
ævinlega. Og þá þyrfti ekki að vera að spyrja og spá, og gizka á,
hverjir væru frumhöfundar Njálu, eða í hvaða hjeraði þeir hefðu
lifað og starfað.
1) Þá er það sennilegt, sem draum-maður segir um það, hvernig Njála
varð til í upphafi. „Upphaflega var Njála þrjár sögur: Gunnars saga Há-
mundarsonar, Höskulds saga Hvítanessgoða og Brennu-Njáls saga“. Sögur þess-
ar urðu til á þann hátt, að „allir hinir stærri viðburðir og vígaferli, gengu eins
og nærri má geta, mann frá manni, ... en margir urðu til að segja frá atburð-
um og flokka þá niður. Með þessum hætti voru þættir sögunnar fullsteyptir,
þegar þeir voru fyrst ritaðir upp, og eru fleiri en einn, sem unnu að því, og var
það eitt með þvi fyrsta, sem ritað var af söguþáttum hjer á landi ... Það liðu
um þrjár aldir frá dauða Höskulds, þar til Gunnars saga og Brennu-Njáls saga
vorix, settwt* sanncm, í einct, heild, og þessu broti, sem eftir var af Höskulds sögu,
steypt inn í milli. En til þess að það væri hægt, varð að skálda inn í og breyta
ýmsu í öllum sögunum, til þess að samræmi fengist". (H. J. Draumar, bls. 4B—46.
Leturbr. hjer). Við þetta brjáluðust ýms sannindi sögunnar.
3*