Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Page 60
62
Höf. Njálssögu segir ákveðið, að Flosi og menn hans fara úr Skaftár-
tungu fjallleiðina, og hafa Eyjafjallajökul á vinstri hönd sér, „þá“
þegar, er þeir hafa riðið um stund vestur Mælifellssand, og koma svo
ofan í Goðaland, “ok svá um skóga í Þórsmörk“. Það er því sannað með
orðum höf. Njálssögu, að Goðaland hefir legið fyrir norðan Þórsmörk.
Um landsvæði, er svari til upprekstrarlands vestan Mælifellssands,
er ekki að ræða, nema Emstrur, sem ég hefi hér áður greint frá, tak-
mörkum þeirra og legu.
Ég hefi oft íhugað, hver ástæða mundi líklegust fyrir nafnabreyt-
ingunni á upprekstrarlandi (Goðalandi) þessu, og það nefnt Emstrur,
og virðist mér rétt að geta hér, hver tildrög mér þykja sennilegust.
Við fráfall goðorðsmannsins eða ættleggjar hans, hefir metnaðar-
ríkur búhöldur náð umráðarétti yfir beitarlandi þessu, fyrir sjálfan
sig eða sveitarfélag sitt, en honum hefir þótt nafnið minna sig tilfinn-
anlega á metnaðarþrá sína, að hafa mannaforráð, er fylgdu völd og
aukin virðing. Hefur hann því numið forna heitið burtu og nefnt land-
ið Emstrur, því að um landsvæði þetta er erfið smalamennska og víða
hættur fyrir fénað.
En þar sem höf. Njálssögu segir, að þeir Flosi hafi farið „um
skóga“, eftir að þeir höfðu farið um Goðaland, og síðan farið „í Þórs-
mörk“, þá mun mega telja fullvíst, að landsvæði það, er hann á við,
sé milli Syðri-Emstraár og Þórsmerkur, það er nú heitir Almenn-
ingar.
Síðar á tímum hefur svo farið fram skifting á hinum víðáttu-
mikla jökulfláka, er þá nefndist einu nafni Eyjafjallajökull. Jökul-
svæðið sunnan Mælifellssands og norðan Mý(r)dalssveitarinnar fær
nafnið Mý (r) dalsjökull. Jökullinn norðan Krossár að Emstrum var
nefndur Þórsmerkurjökull, eða Merkurjökull, sem er vel fallið til að
auka með því hróður Þórsmerkur. En hájökullinn, er liggur að Eyja-
fjallasveit, heldur upprunalega nafninu, Eyjafjallajökull. Verður þá
næst að finna viðeigandi nafn á hrikalegu jökulbunguna norðan Eyja-
fjallajökuls og sunnan Þórsmerkur, er liggur svo til austurs, að dalur
myndast þar á milli. Nöfn hinna jöklanna voru sjálfvalin, því heiti
þeirra var valið af sveitunum, er að þeim liggja, og af Þórsmörk. Þá
skýtur upp í hugum manna hinu forna nafni, sem fallið er niður, en
frægt er af frásögn Njálssögu, og því gott tækifæri til að bæta úr
því, og nefna jökulinn Goðalandsjökul.
Sigurgeir Einarsson.