Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Side 105
97
Hvammsfjörður mældur upp. Með því opnaðist siglingaleið inn á
Hvammsfjörð, sem varð til mikils hagnaðar og hægðarauka fyrir
Dalasýslu, einkum suðurhluta hennar, vegna allra aðflutninga með
mörgu fleiru.
IJtaf kirkjusmíðinu varð mál á millum kirkjusmiðsins, Guðmund-
ar Jakobssonar, byggingameistara, og sjera Jóns Guttormssonar í
Hjarðarholti, sem þau árin var sóknarprestur í Hvammi og prófastur
í Dalaprófastsdæmi. Málið mun hafa verið byggt á talsverðum mis-
skilningi, enda vann Guðmundur að mestu málið fyrir Landsyfirrjetti.
Kirkjugarðurinn í Hvammi stendur á sama stað, sem áður, en endur-
byggður úr grjóti og stækkaður að miklum mun.
Fjárhúsin stóðu lengra inni á túninu en þau standa nú, nema eitt
þeirra, sem stóð talsvert heimar á túninu og fyrir vestan reiðgötuna;
það er kallað Staka-hús. Fjárhúsin voru alls 5 að tölu, og munu hafa
tekið um 200 fjár. Hesthús, sem stóð vestur á túninu, mun hafa tekið
á millum 10 og 20 hesta; var það rjett við túngarðinn, svo að ekki
þurfti að reka hestana yfir túnið, þá er þeir voru látnir inn eða út
að vetrinum. Hestarjett var fyrir neðan (vestan) túngarðinn, rjett
við Hvammsá. Var ætlast til, að þeir, sem kirkjufundi eða aðra fundi
sæktu, ljetu hesta sína inn í rjettina, á meðan messugjörð eða aðrir
fundir stóðu yfir. Hestarjett þessi er fyrir mörgum tugum ára eyði-
lögð, og önnur byggð á öðrum stað, og er hún einnig eyðilögð fyrir
löngu.
Þess er áður getið, að árið 1894 var byggt íbúðarhús í Hvammi
úr timbri. Þetta hús stóð áður í Arnarbæli á Fellsströnd, og var byggt
þar af Boga Smith, þá er hann var bóndi þar. Húsið var flutt sjóveg
frá Arnarbæli inn á Akursodda, sem er vestan Hvammsár, við norður-
horn Hvammsfjarðar; var það flutt á „Óðni“, sama skipinu, sem
efnið í Hvammskirkju var flutt á árið 1888. Var húsið sett upp í
Hvammi sama sumarið, og það var flutt þangað. Sjera Kjartani
Helgasyni fannst bærinn í Hvammi ekki nothæfur til íbúðar, og þess
vegna rjeðist hann í að kaupa þetta hús. Þá var ekki opnuð siglinga-
leið í Hvammsfjörð. Urðu þeir menn, sem umbótaþrá knúði til fram-
faraviðleitni, að sæta súrum svita að koma í framkvæmdir fyrirætl-
unum sínum með byggingar sem annað, þar sem allt efni varð að
sækja til Stykkishólms. Ári síðar, eða árið 1895, var Hvammsfjörður
mældur upp og siglingaleið opnuð. Þetta íbúðarhús var reist á svo
nefndum Smiðjuhól í Hvammi, sem er skammt fyrir sunnan suðurgafl
baðstofunnar, sem var, og stendur þar enn í sama formi. Nokkru fyrir
1920 var reistur bær í Hvammi fyrir ábúandann. Þessi bær stendur
7