Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Side 106
98
þar sem þinghúsið stóð. Veggir hans eru úr torfi og grjóti, og er hann
því kallaður torfbær.
Fjárhúsin hafa verið færð talsvert heimar (sunnar) á túnið en
þau áður voru, nema Staka-húsið, sem stendur á sama stað. Matjurta-
garðar eru miklu minni, enda er fólk þar til muna færra en áður var,
svo sem allvíðast er á sveitaheimilum. En skilyrði fyrir garðrækt og
góðri uppskeru af henni munu hvergi betri í allri Dalasýslu en í
Hvammi. Þegar svo er ástatt, að prestar geta ekki rekið búskap á
prestsetrunum, ætti kirkjustjórnin að annast um, að útvegaður sje
á þau dugandi ábúandi, sem nytji jarðirnar með dugnaði, svo þær ekki
hrörni um skör fram, svo sem of-víða á sjer stað.
örnefni í Hvammslandi.
Þess er fyr getið, að bærinn í Hvammi stendur í dal þeim,
sem Skeggjadalur (1) heitir. Áin, sem rennur eftir dalnum, heitir
Hvammsá (2). Eftir endilöngu túninu liggur reiðgata, sem skiptir því
í tvo parta. Sem allvíða mun vera, er túninu í Hvammí skipt í reiti
(velli), og ber hver reitur (völlur) sitt nafn. Verður hjer fyrst byrjað
á upptalingu örnefna í túninu norðast, við túnjaðarinn, og haldið
suður túnið austan reiðgötunnar. Norðasti völlur í túninu heitir
Fremri-Traðir (3). Næsti völlur fyrir sunnan Heimri-Traðir (4). Þar
fyrir heiman (sunnan) Fremri-Norðurvöllur (5), og svo Heimri-
Norðurvöllur (6). Stykkjum þessum hefir auðsjáanlega verið skipt í
sundur með garðlögum, sem víða sjest fyrir enn. Er þá komið heim
að þinghúsi, eða íbúð bóndans, sem nú er. Stykkið austan-við bæjar-
húsin suður að Bæjarlæk heitir Sýsla (7). Lækurinn, sem kemur ofan
úr fjallshlíðinni og skiptir henni í tvær hlíðar, heitir Bæjarlækur (8).
Fyrir sunnan Bæjarlækinn er stykki, sem Fjósatunga heitir (9). Nær
það stykki frá Bæjarlæknum suður að túngarði og vestur að reið-
götunni, sem liggur sunnan túnið. Stykkið fyrir vestan reiðgötuna, en
sunnan Bæjar-lækinn, heitir Hesthúsvöllur (10). Stykkið fyrir norðan
Bæjarlækinn, en vestan kálgarðinn, heitir Keflisvöllur (11); nær sá
völlur frá kálgarðinum vestur að gömlum túngarði, sem sjest dálítið
fyrir. Þríhyrnt stykki, sem er á millum Keflisvallar og Lögrjettu-
barðs, heitir Akurshesthúsvöllur (12); er sá völlur breiðastur við tún-
garðinn, en smá-mjókkar, og endar í odda uppi í túninu. Lögrjettu-
barð (13) heitir stykkið fyrir norðan Akurshesthúsvöllinn að vestan
og Keflisvöllinn að austan. Nær það frá kirkjugarðinum að austan
vestur að túngarði. Á Lögrjettubarðinu ber hæst af niðurtúninu.
Fyrir norðan Lögrjettubarðið, en vestan og norðan kirkjugarðinn, er
allstórt stykki, sem heitir Kirkjuvöllur (15). Takmarkast sá völlur