Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Qupperneq 14
18
Meiri hluti nafnanna, sem nú var greint frá, er í ætt við nafn
landsins, ísland. Það eru þau Brimnes, Hreggnasi, Kaldbakur, Kald-
rani, Svalbarð og Svarfhóll. Náskyld þeim eru og Fáskruó—Fasferúð-
ur, HarSskafi og Kaldakinn. 011 þessi nöfn virðast gefin af köldum
hug. Mönnum, sem völdu þau, hefur þarna þótt kalt, stormasamt
og heldur óvistlegt. En þeir voru býsna margir, sem slík nöfn þóttu
eiga vel við. Mörg þeirra, Brimnes, FáskrúSur, Kaldakinn, Kaldbakur
og Svalbarð, eru mjög gömul og hljóta að hafa breiðzt út snemma
landsbyggðar. Þau eru bæði nefnd í Landnámabók og dreifð um
alla fjórðunga. Líkt er með nöfnin Arnarbœli og Búrfell. Það mun
ekki vera af tómri tilviljun, að þessi tvö atriði fylgjast að við öll
þessi nöfn. A hinn bóginn virðast þau nöfn í þessum sama flokki,
sem ekki eru tilfærð í Landnámabók, Harðskafi, Hreggnasi, Kaldrani
og Svarfhóll, og eins Arnarstapi, ekki vera dreifð nema um einn eða
í hæsta lagi tvo fjórðunga landsins, en þó öll um stór héruð.
Það eru þó einnig til mörg örnefni, sem menn hafa gefið af hlýj-
um hug, en fæst þeirra virðast vera mjög gömul og dreifð um mik-
inn landshluta. Það er öðru nær. Nöfn úr þessum flokki, sem náð
hafa nokkurri útbreiðslu á norðvesturskaganum, eru Bjartilœkur,
Fagrakinn, Fagriteigur og Sólteigar. B j artalækj ar-nafnið fann eg
á 6 stöðum í Súgandafirði og beggja megin við Djúpið. Það hlýtur
þó að vera til víðar í vesturhluta Isafjarðarsýslu. Fagrakinn heitir
á strjáli í Barðastrandarsýslu og við Steingrímsfjörð, Fagriteigur,
svo langt sem heimildir mínar ná, á 4 stöðum innarlega við Djúpið,
og Sólteigar á fáeinum stöðum í Árnessveit. Á Keldu í Mjóafirði var
kallað Fagriteigur fyrst fyrir stuttu. Þá var mýrarblettur lagður til
túnsins, og vildu sumir láta nýræktina heita Snorradrullu — því að
sá hét Snorri, sem plægði hana —, en bóndinn Fagrateig. Bjarti-
lcekur, Fagriteigur og Sólteigar virðast, svo sem merking þeirra ber
með sér, víðast vera lítilsháttar örnefni og fremur ung, en Fagra-
kinn nokkru eldri.
Nú skal nefna sum samsett örnefni, sem dreifzt hafa um nokkurn
hluta norðvesturskagans, en tilheyra hvorugum flokknum, sem talað
var um síðast — kuldalegu og hlýlegu nöfnunum —. I Súgandafirði
eru margar Breiðhillur — en engin Mjóhilla —, en í Djúpinu
margir Stúfhjallar. I Vestur-Barðastrandarsýslu og Vestur-ísa-
fjarðarsýslu er Aurbrekka algengt nafn. I Barðastrandarsýslu fann
eg þar að auki 4 Loftarbrekkur. Bæði stúfur og aur eru annars
sjaldsén í nöfnunum. Hvað Loftarbrekka er, skil eg ekki. Eg sé engin
líkindi til þess, að nokkuð þessara nafna sé gamalt. Hér fylgjast að