Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Page 17

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Page 17
21 Þarna hefur ímyndunin farið líkar leiðir. Búrfelís-nafnið hlýtur að hafa verið gefið eftir lögun fjallanna. Þau munu hafa sýnzt lík búrum, eins og þau voru byggð í fornöld. Þar vestra eru þó nokkur önnur búr-nöin, sem tæplega munu vera dregin af þessum búrum. f landi Fossár á Hjarðarnesi eru ,,tvær smáhæðir eða balar, sín hvorumegin við Fossá“, sem heita Vindbúrar, en við ós Dufansdalsár í Suður- fjörðum eru „klettastandar beggja vegna við ána“, sem heita, ,,að því er virðist“, Búr. Það er auðséð, að nöfnin eru skyld, og líklegt, að þar sé ekki hvorugkynsorðið búr, heldur karlkynsorð, búr eða búri. Það getur þó tæplega verið búrhvalurinn, því að þá mundi vera óskiljanlegt sambandið við hina einkennilegu staðhætti, að tveir búrar standast á á báðum stöðunum. Mér kom því í hug, að hér gæti verið um að ræða sama orðið og hið fornþýzka bur, bure, gebur, gebure, sem merkir granni. Þessi merking á vel við staðhættina. í landi bæði Kross og Haga eða Múla, í sama hrepp og nefndir Vind- búrar, eru hæðir, sem kallaðar eru Búrar, og mun það vera sama orðið. Eg skil þó ekki, hvernig þýzka orðið ætti að hafa komizt á þenna kjálka íslands. 3. Mikill hluti örnefna og bæjarnafna er kenndur við önnur örnefni eða bæjarnöfn eða aðra staðhætti. Keldeyri (í landi Norðurbotns í Tálknafirði) er kennd við einhverja keldu eða Keldu, en við Keldeyri aftur Keldeyrardalur, og við þenna dal Keldeyrardalsvatn, Keldeyrar- dalsfell og Keldeyrardalsleiti. Þannig mætti halda áfram næstum endalaust, en svo er ekki gert. Eg fann hvergi nafn lengra en ferliða, nema þá Líkárnesnátthagi, en þar mynda síðustu tveir liðir þó einn nafnslið, sem ekki er hægt að skipta, því að leiðin liggur frá nafn- inu Líkárnes beint til Líkárnesnátthagi, en ekki yfir neitt Líkárnesnátt. Það má og ætla, þegar fjórir liðir eru komnir saman, að komið sé nóg, til þess að staðirnir séu vel aðgreindir frá öðrum. Nöfnin munu þá og þykja orðin nógu löng og óþjál, einkum þegar allir liðirnir eru tvíkvæðir, svo sem Gvendarhúsahlíbarhjallar (í landi Skjaldfannar á Langadalsströnd), enda eru slík nöfn afar fágæt. Það er auk þess líklegt, þó að kallað sé að staðir heiti þessháttar nöfnum, að þau séu samt lítið notuð manna á milli. Svipáð mun vera með flest önnur ferliða nöfn, þó að þau séu styttri en GvendarhúsahlíSarhjallar og jafnvel ekki lengri en til dæmis Heydalsárfjall. Þesskonar örnefni eru þó einnig strjál og tæplega fleiri en 1 meðal 100 eða 200 nafna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.