Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Side 18
22
I daglegu tali verða þó einnig mörg þrí- og tvíliðuð nöfn fyrir stytt-
ingum, og víða fer að lokum svo, að lengri myndirnar týnast niður
með öllu.
Stytting staðanafna fer langoftast fram þannig, að sleppt er fyrri
eða fyrsta liðnum eða tveim eða þrem fyrstu liðunum. Yzt í Rauða-
sandshreppi er bærinn Hvallátur eða Hvallátrar. Við hann eru kennd
Látrabjarg, Látradalur, Látraháls, Látranes, Látraröst, Látravatn og
Látravík, en við Látrabjarg aftur Bjargtangar og við Látradal Dal-
brekkur. Það er óvíst, hvort þessir tangar og þessar brekkur hafa
nokkurn tíma verið kallaðar Hvallátrabjargstangar og Hvallátradals-
brekkur, enda er bærinn sjálfur oft kallaður Látur eða Látrar. Svip-
aðar nafnaraðir eru til dæmis Sauðlauksdalur-Dalssandur-Sandoddi
og Skriðnesenni-Ennisstigi-Stigavík. Sumstaðar eru þó ekki stytt svo
sem hér öll nýmynduð nöfn hvert af öðru, heldur sum nöfnin í röð-
inni látin vera óstytt. Svo heitir í landi Norðurbotns^ Keldeyri og
Keldeyrará og upp af henni Árbrúnadalsfell, en ekki, svo sem búast
mætti við, Keldeyri-Eyrará-Árbrúnir-Brúnadalur-Dalsfell. Hér verður
þó að taka fram, að mikill hluti slíkra nafna, sem sýnast vera stytt,
er það að líkindum þó ekki, því að menn munu heima fyrir varla
vera vanir að kalla Látradal, dalinn sinn, annað en dalinn, eða
Skriðnesenni ennið, og gátu þá kallað brekkurnar og stigann Dal-
brekkur og Ennisstiga án nokkurrar styttingar.
í stað þess að stýfa nöfnin að framan, hafa menn þó allvíða stytt
þau með því að fella liði innan úr þeim, svo framarlega sem þau
voru þrí- eða ferliða, ellegar þá, þegar þeir mynduðu ný nöfn út af
eldri fleirliða nöfnum, sleppt síðari eða síðustu liðum þeirra, áður
en þeir skeyttu við nýju liðunum. Nafnmyndir, sem þannig eru til
orðnar, er miklu verra að eiga við en fyrrnefndar styttingar. Því að
þegar liðir eru felldir innan úr, eru aðrir nafnaliðir tengdir saman
en þeir, sem eiga saman að réttu, og eru þeir, sem skýra vilja nöfnin,
þá illa staddir, nema það sé hægt að komast að raun um styttinguna.
En það mun víðast hvar vera erfitt eða ókleift. Sem betur fer, eru
þó til ýmiskonar undantekningar frá þessu, þar sem glöggt má sjá,
hvernig slík nöfn eru til orðin og hvað þessar styttingar vilja hafa í
för með sér. Eg skal nú tilfæra nokkur dæmi.
Nokkur nöfn eru í heimildunum nefnd bæði í fullri mynd og í
styttri, svo að fellt er innan úr þeim. Milli Barðastrandar og Tálkna-
fjarðar er kallað Miðvörðuheiðarvegur og MiSvörðuvegur, í Tálkna-
firði Gildalseyri og Gilseyri, í Bakkadal í Arnarfjarðardölum Litla-
dalshorn og Litlahorn, í Dufansdal Grýlufosshvolf og Grýluhvolf, í