Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1949, Síða 60
64
rétt athugað hjá S. Þ., að 70 er ekki rétt tala, þegar gengið er út frá
70 beinagrindum eins og ég geri í ,,Forntida gárdar“, heldur 74.
En þegar reiknað er með 66, eins og gert er í „Þjórsdælir hinir
fornu“, þá fást 70 íbúar, og þá tölu hef ég af vangá sett í „Forntida
gárdar“. Óþarft er að taka það fram, að engu máli skiptir fyrir þær
ályktanir, sem dregnar voru af íbúatölunni, hvor talan er höfð, svo
að þess vegna hefði athugasemd S. Þ. mátt vera velviljaðri. Það, sem
máli skiptir, er, að hafi byggðin farið í auðn um miðja 11. öld, þá
hafa íbúar hennar verið um 70, sem vel getur svarað til einnar sóknar,
en hafi byggð tekið af í byrjun 14. aldar, þá hafa íbúarnir verið
11—12. 1 fyrra fallinu komu 6—7 manns á bæ, ef gert er ráð fyrir,
að 11 bæir hafi verið í byggð samtímis, en nú er líklegt, að svo hafi
ekki verið og koma þá eitthvað fleiri heimilismenn á bæ til jafnaðar.
I síðara fallinu er vart hægt að gera ráð fyrir heimilisfólki af fleiri
en einum bæ. Hvort tveggja getur vel staðizt, að því er ætla má um
stærð heimila á þeim tímum. Mér finnst þess vegna, að naumast sé
nema um tvennt að velja, ef það er haft fyrir satt, að Hjalti Skeggja-
son hafi reist kirkjuna skömmu eftir kristnitöku. Annaðhvort hefur
grafreiturinn verið fyrir alla byggðina og þá einungis í notkun í um
50 ár eða það hefur verið jarðsett í hann um þriggja alda skeið,
og hefur hann þá verið heimagrafreitur.
Ég skal ekki endurtaka hér, hvað mælir með og móti hvorri skoð-
un um sig, en niðurstaðan af athugunum mínum var þessi: „Að öllu
athuguðu tel ég sennilegast, að í byggðinni til forna hafi verið að
meðaltali um 70 manns og að þeir hafi átt kirkjusókn að Skeljastöð-
um og að álit Ólafs Lárussonar, að byggðin hafi verið komin í auðn
um miðja 11. öld,1) sé rétt“ (Þjórsdælir hinir fornu, bls. 15). Þetta
kallar S. Þ. að halda mjög fram skoðun Ólafs Lárussonar. Fyrir mér
stendur það svo, að á hlutlausan hátt sé gert upp á milli tveggja
skoðana.
S. Þ. hefur það rétt eftir mér, að ég áætli, að 70 menn eldri en 20
ára hafi látizt í Þjórsárdal á 50 árum og að 200 menn hafi látizt í
Haffjarðareyjarsókn á sama árafjölda, en síðan bætir hann við:
„Þetta stangast nokkuð við Þjórsárdalsútreikningana“ (Árb. 1943
—48, bls. 70). Hér er ekkert sem stangast. „Menn“ er sama og
fullorðnir og börn og jafngildir því ekki „menn eldri en 20 ára“.
Hvort dalurinn hafi farið í eyði smám saman eða allur samtímis,
er veigaminna atriði en hvenær þetta varð. Beinafundurinn, eins og
1) 1 grein minni í Skírni 1946 stendur 10. öld, og er það vitanlega
prentvilla.