Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1972, Page 26
30
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
voru við miðjar skammhliðar hússins og hafa stoðir undir mænirás
sennilega staðið í þeim. Holur voru einnig í hornunum nema því
syðsta, enda náði ofninn fast út í það. — Við norðvesturvegginn
voru svo þrjár holur, og var ein þeirra miklu stærst, og við austan-
verðan suðausturlangvegginn einnig tvær holur, og síðan ein stór
inni á gólfinu skammt framan við ofninn. Tveir allstórir steinar
lágu á gólfinu, annar framan við ofninn en hinn við norðvesturvegg-
inn, en ekki er gott að segja, hvort þeir hafa haft einhverju hlutverki
að gegna eða einungis verið þar af tilviljun.
Víða var erfitt að sjá, hvar gólfið endaði og veggir tóku við, því
að veggirnir fláðu mjög inn neðst og gólfi hallaði upp frá miðju.
Einkum var erfitt að sjá skilin að suðvestan og norðvestan.
Ógerningur reyndist að finna dyr eða uppgöngu í húsinu, og á
það reyndar sammerkt við öll húsin af þessu tagi. Sennilega hefur
verið loftshleri í húsum þessum og tréstigi upp í hann, sem síðan
hefur fúnað eða verið tekinn, er hætt var að nota húsið. Má styðja
það fleiri líkum, sem síðar verður gert.
1 norðurendanum, þar sem gólf og veggur mættust, fannst hlutur
úr hvalbeini, hníflaga og sem líkastur lítilli vefjarskeið. Hluturinn
var 25,5 sm langur og 4,5 sm breiður og þykktin 0,5 sm. Ekki er
með vissu hægt að segja, hvaða hlutur þetta var, en gizka má á
vefjarskeið, eða hluta af vefjarskeið. Ekkert handfang var á hlutn-
um, en vera má að það hafi verið í upphafi, þótt þess sæjust engin
merki. Hluturinn féll sundur og eyðilagðist áður en náðist að verja
hann með réttum efnum.
Þetta hús hefur verið aflagt meðan byggð var enn á staðnum, því
að það var fullt af sorpi og úrgangi, einkum ösku og húsdýrabeinum.
Einkum bar mikið á beinunum og sums staðar myndaði beinamylsn-
an lög í moldinni. Þau bein, sem tolldu saman, reyndust vera leggja-
bein og önnur bein úr húsdýrum, þar á meðal hluti af höfuðbeinum
úr svíni.
Helztu hlutir, sem fundust í húsinu, voru þessir:
Rronsþynna, f. í fyllingunni í húsinu, óvíst til hverra nota.
Húsdýrabein, úr stórgripum, kindum og svínum.
Vefjarskeið(?) úr hvalbeini.
HÚS V, JARÐHÚS, 18.—.20. mynd.
Þetta hús var rannsakað 1965. Það var vestast á rannsóknarsvæð-
inu og reyndist hafa verið með svipuðum ummerkjum og hin tvö
fyrrnefndu, um 2,2 X 3>9 m að stærð niðri við gólf og fláðu vegg-