Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1972, Page 51

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1972, Page 51
SÖGUALDARBYGGÐ í HVÍTÁRHOLTI 55 í holunum og síðan verið fléttað viðjum á milli, úr birkilimi eða hrísi. Slík veggjagerð er að vísu óþekkt hér á landi, en hún er þekkt t. d. í Danmörku á víkingaöld svo og á Irlandi, fyrir svo utan það að vera alþekkt erlendis á seinni tímum. — Hins vegar er erfiðara að skýra, hvers vegna steinunum hallar öllum inn í húsið, en það virðist greini- lega gert af ásettu ráði. Yfirleitt sveigjast skálarnir jafnt milli enda, en á þessum skála er miðja langveggjanna bein og síðan kemur sveigjan nær eingöngu á stuttum kafla. — Inngangurinn er nokkru nær miðju hússins en bú- ast mætti við, og eins og fyrr segir gætu þeir hafa verið tveir, þótt ekki verði um það fullyrt. Svo virðist helzt sem vestasti skálinn, hús VIII, sé byggður næst á eftir þessum fyrsta. Ógerlegt er að segja, hve lengi fyrsti skálinn, eða skálarnir hver um sig, hefur verið í notkun, en varla hafa skál- arnir þó verið rifnir fyrr en þeir voru farnir að skemmast sakir elli. í þessum skála (VIII) voru fáar stoðarholur, aðeins nokkrar að norð- anverðu svo og í austurhlutanum, sem skemmdur var, en þar var erfitt að greina með vissu, hvaða holur tilheyrðu skálanum sem slík- um, en að sunnanverðu voru greinilega stoðarsteinar, sem áttu sér samsvarandi steina að minnsta kosti sums staðar að norðanverðu. Hér hafa menn verið búnir að leggja af hinn gamla sið að miklu leyti, að láta stoðir standa í gólfinu. Hins vegar voru holur eftir útstafi að norðan, þó nokkuð óreglulegar meðfram veggnum, en að sunnan varð þeirra ekki vart. Hafa þeir væntanlega staðið á steinum þar. Hér var einnig meðfram miðbiki suðurveggsins steinaröð, sem sennilegt má telja, að aurstokkur hafi hvílt á, en hinar einkennilegu smáholur, sem voru milli steinanna í elzta skálanum, fundust hér ekki. Hefur skáli þessi verið öllu venjulegri að gerð en hinn fyrri. Hér hafa dyrnar verið tvennar, eins og stundum tíðkaðist, t. d. í Skallakoti í Þjórsárdal. Er þó ekki víst, að þær hafi báðar verið not- aðar í senn, eða hvort eystri dyrnar eru eldri og þeim síðan lokað og hinar gerðar er skálinn var styttur. Erfitt er að segja, hverjar ástæður hafa legið að baki því, að menn fóru að stytta skálann, en enginn vafi virðist leika á því, að það hafi verið gert. Má helzt láta sér detta í hug, að skálinn hafi verið oi’ðinn gamall og lasinn og austurendinn hreint og beint ónýtur og endinn því einfaldlega rifinn í stað þess að gera við hann, og síðan hafi verið ráðizt í nýja skálagerð. Yarla stafar þessi breyting af því, að ekki hafi meira rýmis verið þörf og húsnæðið minnkað þess vegna. Hér er komið bakhús við skálann og virðist það ótvírætt benda til
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.