Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1972, Page 162

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1972, Page 162
162 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS áratugi, var tekið niður um óákveðinn tíma, samkvæmt leyfi mennta- málaráðuneytisins, og bókasafnið flutt þangað í staðinn. Vaxmynda- safnið hefur ekki haft nein skilyrði til endurnýjunar og hefur verið að kalla algerlega óbreytt frá fyrstu tíð. Margar myndirnar voru farnar að láta allmikið á sjá, einkum vegna upplitunar og hnjasks, en fjárhagslegur möguleiki enginn að endurnýja né bæta við mynd- um. Vegna mikilla og ört vaxandi þrengsla í bókasafninu, sem var til húsa í litlu herbergi í turni, var nauðsynlegt að fá því aukið hús- pláss, og reyndist þetta hentugasta leiðin. Rifjað skal upp að Vax- myndasafnið var aldrei afhent safninu formlega, heldur aðeins sýnt þar til bráðabirgða að tilmælum menntamálaráðherra. Bókasafnið hefur mjög aukizt undanfarin ár, enda hefur verið keypt til þess talsvert bóka, en aðalbókaaukinn kemur þó í skiptum fyrir Árbók fornleifafélagsins, sem er í rauninni málgagn safnsins. — Voru nú pantaðar bókahillur frá Danmörku og settar upp í hinu nýja bókasafni og fyrir áramótin var hægt að hefjast handa um flutning safnsins. Munu þessar úrbætur duga um nokkurt árabil, enda reynt að nýta rýmið svo vel sem kostur var. Sést nú gleggst þegar safnið er sett eðlilega upp, hve mikið það er að vöxtum, enda reynist nú unnt að sameina í því bókasöfn Andrésar Johnsons og Gunnars R. Hansens, sem Þjóðminjasafnið erfði fyrir nokkrum ár- um. Árni Björnsson safnvörður hefur samið eftirfarandi greinargerð um starfsemi þjóðháttadeildar á árinu: „Starfsemi þjóðháttadeildar hefur verið með líkum hætti og und- anfarin ár, enda vart mikilla breytinga að vænta, meðan engar breyt- ingar verða á starfskröftum. Hvort sem það á við í skýrslu eður ei, tel ég rétt, að sú sjálfsagða skoðun komi hér fram, að árangur þessa starfs helgast ekki af magni þess fróðleiks, sem lifir með þjóð- inni, heldur miklu fremur af þeirri áherzlu, sem lögð er á að safna þessum sama fróðleik. Sem einfalt dæmi skal tekinn fjöldi þeirra heimilda, sem þjóðháttasafninu barst á árunum 1960-1971, en hann var í réttri tímaröð: 140, 191, 142, 198, 275, 172, 166, 93, 100, 266, 312, 352. Eftirtektarverð eru hér tvö ris í söfnuninni. Annað er árið 1964, þegar fyrst er ráðinn sérstakur starfsmaður að þessari deild. Síðan kemur nokkurra ára lægð, sem einvörðungu stafar af því, að þá er þessi sami starfsmaður notaður til annarra verka við safnið. Loks hefst annað ris árið 1969, vegna þess að þá er aftur ráðinn sérstakur maður að deildinni. Þessum seinmetnu heimildum mundi því vafalítið fjölga um helming, ef helmingi meira væri í lagt.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.