Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1972, Blaðsíða 164
164
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
eitt hið bezta í viðgerðum á veftum. Að viðgerð lokinni var kápan
sýnd á sýningunni Islandia í safninu, sem síðar getur, en var ekki
komin heim fyrir áramót. Þjóðminjavörður Svíþjóðar, Islandsvinur-
inn Sven B. F. Jansson, sýndi Þjóðminjasafninu þá velvild að bjóða
fram fé úr sænskum sjóði til viðgerðarinnar, sem varð alldýr, og
varð því viðgerðin safninu að kostnaðarlausu.
Statens historiska museum hefur jafnframt boðizt til að yfirfara
og gera við fleiri fornar veftir fyrir Þjóðminjasafnið, og er mikils
virði að mega eiga von á slíkri aðstoð frá hinu víðþekkta verkstæði
þess, enda er þörfin hér brýn fyrir viðgerðir af þessu tagi.
Á árinu 1970 gaf Benedikt Magnússon frá Vallá Þjóðminjasafninu
gamla bifreið, sem hann átti, Ford-T af árgerð 1923. Þetta var fyrsta
slökkvibifreið Akureyrar, kom þangað um 1930, og jafnframt fyrsta
slökkvibifreið utan Reykjavíkur. Var lítillega hafizt handa um að
koma henni í upphaflegt horf, og annast Erlendur Halldórsson vél-
virkjameistari í Hafnarfirði það verk, en það komst skammt á ár-
inu, enda aðeins unnið sem ígripavinna. — Þá tók safnið uppá sína
arma eldri Fordbifreið, vörubifreið frá 1917, er Bjarni Erlendsson
á Víðistöðum við Hafnarfjörð átti, en þetta mun elzta bifreið í land-
inu, aðeins fjórum árum yngri en fyrstu Fordbifreiðarnar, sem komu
til landsins. Verður reynt að koma þessari bifreið í stand á næstu
árum, enda er nú fyllilega kominn tími til að huga að upphafi tækni-
aldar í landinu. Hér er enn ekkert tæknisafn og verður því Þjóðminja-
safnið að gera það sem á annað borð verður gert á því sviði.
Enn var haldið áfram viðgerðum safnhússins, og var einkum
unnið í raflögnum og pípulögnum. Þá var undirbúningur hafinn að
viðgerðum glugga og þakskeggs á austurhlið og vinnupallar reistir
við húshliðina, en ekki var hafizt handa um þær framkvæmdir á
árinu.
Á safnið kom á árinu Peter H. Bennett frá stjórnardeild þeirri
í Ottawa í Kanada er annast söguleg minnismerki og var hann á
ferð til Norðurlanda vegna stofnunar ráðgefandi nefndar um L’Anse
aux Meadows á Nýfundnalandi. Bað hann þjóðminjavörð taka sæti
í þeirri nefnd af Islands hálfu, en auk þess eiga norskir, sænskir og
danskir fornleifafræðingar sæti í henni auk Kanadamanna. Hafa
Kanadamenn uppi ráðagerðir um stofnun safns þar vestra og vilja
hafa víkingaaldarfræðinga sér til ráðuneytis, svo og um frekari rann-
sóknir á svæðinu og framtíðarskipulag þess.