Fylkir - 01.01.1922, Page 32
32
Fjárhagur Islands.
Velmegun þjóba byggist á þv‘<
að þcer eyði minnu drlega, cn
tekjur þeirra nema.
Adam Smith.
Samkv. landsreikningunum fyrir árið 1919, voru skuldir hins nýfædda
♦ ríkisc eða fullveldis orðnar riíml. 16 million kr., hinn 31. Des. 1919;
höfðu þrefaldast síðan 1914. Hve mikið skuldirnar hafa aukist síðan f*r
alþýða sð vita þegar lands-reikningarnir verða framlagðir næsta Febrúar-
Hafi þær aukist aðeins um þær 10 millionir kr., sem stjórnin tók til láns
sl. Ágúst, þá nema þær nú ekki mikið yfir 26 million kr. Vera má að Þ®r
nemi alt að 30 millionum kr, ýnisra orsaka vegna. En livor upphæðin sem
er, nl. hvort sem sknldin er orðin 300 kr. eða 330 kr. á hvert nef, þá er
hún ekki svo ógurleg, né óborganleg, ef menn bæta nú ekki við hana>
heldur gera sitt ýtrasta til að borga hana sem fyrst.
Neiti Iandsmenn sér um aliar munaðarvörur og allar óþarfar vörur, setw
á síðustu árum hafa tekið 10—12 million kr. á ári út úr Iandinu, ef ekk*
hærri upphæð, og noti landsmenn auðlindir íslands til lands og sjávar með
dugnaði og forsjá, þá geta þeir innan tveggja til þrfggja ára afborgað a"a
þá skuld, sem á hið unga ríki er fallin og áunnið sér það traust og
virðingu sem þjóðfélagið þarfnast til þess að geta haldið verzlunar við'
skiftum við eriendar þjóðir áfram óhindrað og heilbrigt, þannig a^
íslenzka krónan haldi fullu verði. Til þess þarf þjóðin ekki annað en ^
neita sér um allan óþarfa og leggja fyrir nægan málmforða í þjóðbankantu11
til að geta innleyst hvern einasta útgefinn seðil, krónu fyrir krónu, med
gulli. Það er regla, sem íslendingar gela lært af þjóðbanka Bretlands (The
Bank of England).
Áætluð útgjöld árið 1922, eru 9 millionir 306 þús. kr.; en áætlaðar tekj'
ur aðeins 7'k million kr. Útgjöldin þetta ár eru áætluð ferfalt hærri efl
þau voru áætluð árið 1916, og nærrf þrítugfait hærri en þau voru ásetluð
árið 1894. Þessi tekjuhalla ráðsmenska, eða spólitíkc, varð að venju snemm®
á stríðsárunum. Er vonandi að þing og þjóð taki höndum saman og I*kk>
útgjöldin svo mikið, að tekjurnar verði þó heldur hærri en þau árleg8,
Annars er hætt við að hið nýfædda fullveldi verði ekki langlíft.
Prmtsmiija Odcls Björnsionar Almrtyri. I9i2‘