Fylkir - 01.01.1922, Síða 82
82
heldur eru menn ásáttir enn um að útiloka áfengi og hætta öl-
brugginu og smygluninni hér á íslandi. Pví tóbaks tollarnir gefs
landinu tekjur, segja menn, svo einnig sælgætið, o. s. frv-, og
auðvitað gefa kvikmyndirnar, sem flytjast inn í landið og sem fólk
eyðir mörgum tugum þúsunda fyrir að sjá árlega, þó það eig>
varla til næsta máls, einnig landsjóði peninga, jafnt sem eigenduui
bíó-húsanna. Pað er sparnaður í því! Það, sem að öllum líkinduni
verður skorið niður, er kennara fjöldinn. Grískukenslan við Há-
skólann á, t. d., að fara, einnig sálarfræði kenslan. Háskólinn kemst
af, halda þeir, án nokkurrar grískukenslu eða sálarfræðslu! AU>r
>bitlingar« verða að líkindum afnumdir, nema til leikfélaga og skálda.
Fólk þarf eitthvað að lesa, og það verður að skemta sér !
Vetrar skemtanir.
Þrátt fyrir hið ískyggilega ástand og hina almennu dýrtíð, léttr
fólk hér á Akureyri og í grendinni sér upp s.l. vetur, eins og a^
undanförnu. Sjónleikir, dansar, hljómleikir, bíó-sýningrr fyrirlestrar,
gildi, spilagildi, stáss-glímur o. s. fr. styttu fólkinu stundir megif>'
hluta vetrarins — stundum á helgidögum. — Og því meir sem að
þrengdi og útlitið sortnaði, því meir dansaði fólkið. Börn og ung'
lingar, fullorðnir og gamalmenni, allt dansaði, — eins og til að harka
eymdina og dýrtíðina af sér.
Alþýðufyrirlestrar stöku sinnum haldnir og seldir með afarlág'
um inngöngueyri, voru lélega sóttir. En væri dans auglýstur, ásanif
sjónleik eða hljómleik, þá var húsfyllir í samkomuhúsi bæarins, Þ°
aðgangur kostaði 2 — 3 krónur. Þá voru nægir peningar til, þá va>'
engin dýrtíð! Hve mikið fé hefur farið þannig fyrir dansa, sjófl'
leiki og bió-sýningar í þessum litla kaupstað, er örðugt að seg]a>
en líklega hefur það verið nær 30 en 20 þúsundum króna. Fyr>r
þá upphæð hefði mátt mikið gera, ef vel hefði verið á haldið, t. d.
lireinsa bæinn, eða byggja íbúðarhús yfir fátækt fólk, sem *
bænum og ekki hefur viðunanlegt húsnæði, eða kaupa ofn til kalk'
brenslu, eða kosta unga menn til að læra að brenna kalk og múrstein-
U. M. F. A. sýndi rögg af sér s.l. vetur, í að mótmæla því,
frumvarpið til Spánar-samninganna yrði samþykt, en alt árangurS'