Óðinn - 01.01.1924, Page 25

Óðinn - 01.01.1924, Page 25
ÓÐINN 25 tillögur Finns runnar frá hennar brjósti, en hitt er víst að hann átti jafnan vísan stuðning hennar í því sem henni geðjaðist að. Það er jafnaðarlegast húsmóðirin, sem heimilið tek- ur svip sinn og blæ frá. Og það var líka eins og ríklyndi og mikillæti húsfreyjunnar á Geirólfsstöðum svifi þar yfir vötnunum, lægi þar svo að segja í and- rúmsloftinu. En það munu oftast verða óöfundsverð æfikjör, að bæla mikilláta lund innan þröngra moldar- veggja, og að samrýma höfðingslund þröngum efna- hag. Því meiri furða er það, hversu vel Bergþóra hjelt og heldur enn lundareinkennum sínum, og hversu aldur og ýms erfið lífskjör hafa lítið unnið á hennar andlega þrótti og fjöri. Hún er enn í dag sívakandi og áhugasöm, fylgist með og tekur einlægan þátt í almennum málum, betur og með miklu meira fjöri og þrótti, en alment gjörist meðal sveitafólks, jafnt karla sem kvenna. Og þetta þrátt fyrir 70 ára aldur og tæpa heilsu. Sálarþrekið að upplagi mikið og nálega ósigrandi. Bergþóra var að vexti há kona og grönn, og svar- aði sjer vel, fríðleikskona bæði í andliti og á velli. Framganga og fas alt tígulegt, og leyndist ekki, að sópaði af konunni. Lundareinkenni hennar hefur verið drepið á að nokkru. En hvað komið hefði fram hjá henni, ef lífskjörin hefðu verið önnur, og meira við hennar hæfi, um það getur enginn sagt. Hitt er víst að hún var að upplagi mjög mikilhæf kona. Þegar þau Finnur og Ðergþóra giptust árið 1880, og byrjuðu búskap á Geirólfsstöðum, voru ný-afstaðnir erviðir tímar á Austurlandi, og afleiðingar öskufalls- ins frá 1875 á ýmsan hátt þá enn viðvarandi. Höfðu þær komið allhart niður á Geirólfsstaðabúinu, sem víðar. Búið, sem þau byrjuðu með, var nálega alt í skuld, svo að allmjög reyndi, þegar frá byrjun, á at- orku og ráðdeild ungu hjónanna. Að þessu bjó að vonum, og þegar þar við bættust óhöpp, svo sem bæjarbruni o. fl., þá var afleiðingin þröngur efnahagur lengi vel fram eftir. En svo lauk, að Geirólfsstaða- búið varð að lokum eitt með hinum best stæðu í sveitinni. Höfðu þau þá keypt Geirólfsstaði, sem áður var kirkjujörð, og byrjað talsverðar jarðabætur þar í túnasljettum og skurðagjörð og síðast algirt túnið o. fl. En bæði fyr og síðar var heimilið hið sama myndar og rausnar heimili. Gestrisni og alúðarviðmót jafnt á báðar hliðar hjónanna, enda heimilið mjög að sótt, einkum af hinum betri gestum, sem um hjerað fóru. Og þá voru þau Geirólfsstaðahjón ánægðust er þau sáu flest góðra gesta á heimili sínu. Börn þeirra Finns og Bergþóru eru Margrjet, f. 8. júlí 1881, ógift heima, heilsubiluð. Guðrún Helga, f. 6. febr. 1884, gift prentmeistara Gísla ]ónssyni í Winnipeg í Ameríku, og Helgi, f. 25. apríl 1887, nú bóndi á Geirólfsstöðum, kvæntur Jónínu Benedikts- dóttur, hreppstjóra, Eyjólfssonar á Þorvaldsstöðum í Skriðdal. X. Sl Kristleifur Þorsteinsson bóndi á Stóra-Kroppi. Kristleifur Þorsteinsson. Húsafell er fremsti bær í Borgarfjarðarsýslu. Seint á 12. öld var þar settur staður og þaðan af var þar oftast prestsetur, uns prestakallið var sameinað Reyk- holti 1812. Næst- síðastur Húsafells- presta, og þeirra frægastur í minning- um síðari tíma, var sjera Snorri Björns- son, sem dó fjör- gamall 1803. Ætt hans hefur löngum setið Húsafell síðan. Jakob sonur hans fyrst, er kvæntur var Krístínu Guðmunds- dóttur frá Leirvogs- tungu Sæmunds- sonar, Þórðarsonar prests á Staðastað, Bauka-Jónssonar biskups á Hólum Vigfússonar. Þor- steinn son Jakobs og Kristínar fæddist 1814, tók við Húsafelli af föður sínum og dó 1868. Kona hans Ingibjörg, Jónsdóttir frá Deildartungu, lifði hann í 37 ár, dó 1905, og man jeg að um engan töluðu þeir hlýlegar úr Reykholtsprestakalli gamla, faðir minn og sjera Guðmundur Helgason, en Ingibjörgu á Húsa- felli. »Það er svo um einstaka manneskjur, að um þær leikur svo hlýr og glaður kærleiksblær að allir vermast við, og Ingibjörg heitin var ein af þeim« (N. Kbl. 1906.). Kristleifur á Stóra-Kroppi er sonur þeirra Þorsteins og Ingibjargar, fæddur á Húsafelli 5. apríl 1861, fjórði maður í beinan karllegg frá sjera Snorra, en Ástríður systir Kristleifs tók við Húsafelli og bjó þar langa hríð með Þorsteini bónda sínum, Magnússyni frá Vilmundarstöðum, og nú situr Þor- steinn, þeirra yngsti son, á Húsafelli, kvæntur dóttur Kristleifs.

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.