Óðinn - 01.01.1924, Blaðsíða 41

Óðinn - 01.01.1924, Blaðsíða 41
ÓÐINN 41 þá inn á sjómannaskólann í Bogö og lauk þar prófi vorið 1907. Hjelt svo áfram siglingum er- lendis sem háseti og stýrimað- ur; þar á meðal stýrimaður á skipum Dansk-Russisk Co, og öðrum útlendum skipum. Arið 1917 varð hann stýrimaður á Villemoes og hefur síðan verið óslitið hjá Eimskipafjel. Er nú skipstjóri á strandferðaskipinu »Esja«. Þ. Beck hefur verið sem stýrim. og skipstjóri á flestum skipum sem Eimskipafjelagið á og stjórnar (landsskipunum) en lengst á strandferðaskipunum Sterling og Esju, og er þannig ]úlíus Júliníusson. orðinn landsmönnum mjög kunn- ur. Honum hefur auðnast það, að sýna atkvæðadugnað í starfi sínu og vinna hylli allra, sem honum hafa kynst. Er það þó stundum vanþakklátt verk að vera skipstjóri á strandferða- skipunum hjer við land. Kemur þar að góðu haldi lipurð og júfmenska Þórólfs skipstjóra. Þórólfur Einar Stefánsson fæddist að Knararnesi á Vatnsleysu- strönd árið 1884. Um ferm- ingaraldur fór hann að stunda sjó á þilskipum, og gekk svo á Stýrimannaskólann í Reykjavík og tók þar próf 19 ára gam- all. Hjelt síðan áfram námi er- lendis og tók þar æðri próf, og sigldi um hríð erlendis sem stýrimaður og fór víðsvegar um heim. I þjónustu Eimskipafjelagsins gekk hann strax við stofnum þess, fyrst sem srýrimaður, uns landið keypti Sterling til strandferðanna. Varð hann þar skipstjóri sumarið 1917 og stjórnaði því þar til hann tók við Goðafossi 1921 og er þar síðan. Einar skipstjóri er alþektur að dugnaði og áreiðan- leik, og mun það samt varla vera alkunnugt, hvað hlutverk hans hefur oft verið erfitt. Hann tók við Sterling á mestu vandræðatímum stríðsins og varð Sigurður Pjetursson. þar að halda uppi samgöngum milli allra hafna lands- ins og Reykjavikur, en um það bil fengu fjölda margar hafnir úti um land megnið af nauðsynjum sínum frá Reykjavík. En strandferðir um hávetur á Sterling voru glæfraferðir. Skipið gamalt og alls ekki útbúið til vetrarferða hjer við land í hafísum og hríðum. Þegar hann tók við Goðafossi, sem er stærsta og besta skip fjelagsins, varð hann um leið að taka við ferðum til verstu hafna landsins, sem hin útlendu út- gerðarfjelög áskildu sjer stundum að vera laus við. Beck. Einar Stefánsson.

x

Óðinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.