Óðinn - 01.08.1933, Blaðsíða 1
OÐINN
8.—12. BLAÐ
ÁOÚST — DESEMBER 1933
XXIX. ÁR
Ágúst Flysenring.
Ágúst Flygenring var fæddnr að Fiski-
læk í Borgarfirði 17. apríl 1865, sonur
Þórðar Sigurðssonar hreppstjóra og konu
hans Sigriðar Runólfsdóttur, æltaðri frá
Saurbæ á Kjalarnesi. Hafði Þórður num-
ið smíðar i Iiaupmannahöfn, hjá manni
þeim er Ágúst Flygenring hjet, og ljet
son sinn heita eftir honum.
Ágúst Fíygenring misti föður sinn
ungur, fór að heiman um fermingu, og
stundaði upp frá því sjómensku í nær-
felt tuttugu ár, eða fram til ársins 1899.
— Hafði hann þá verið skipstjóri á þil-
skipum, annara fyrst, en síðar sínum, í
tólf ár, og var annálaður dugnaðar- og
aflamaður. Stýrimannsprófi hafði hann
lokið í Noregi og jafnframt lært þar
seglasaum. Var hann fyrslur manna hjer
á Suðurlandi, sem rak þá iðn og kendi
hana mörgum. — Þegar hann ljet af
sjómensku, gerðist hann kaupmaður og
útgerðarmaður i Hafnarfirði, þar sem
hann hafði búið síðan hann komst á
legg, og var mestur framkvæmdamaður
og höfðingi þar í Firðinum um langt skeið.
Bygði hann ný verslunarhús, is- og frysti-
hús, og ljet gera stóra og góða fiskverk-
unarstöð á Langeyrinni og smájók skipa-
stól sinn. Átti hann 5 þilskip, þegar hann
árið 1909 seldi verslun sína og skip hf.
Copeland og Berrie, og varð forstjóri
þessa firma í Hafnarfirði.
Árið 1912 stofnaði hann hf. »Dverg«
(trjesmíðaverksmiðjuna) í Hafnarfirði og
var alla tíð formaður í stjórn þess. 1914
stofnaði hann togarafjelagið »Ými«, og
var forstjóri þess meðan það starfaði. Hann unga«, og í stjórn beggja fjelaganna frá stofn-
var einn af stofnendum »FjeIags ísl. botnvörpu- degi og þar til hann fluttist af landi burt. —
skipaeigenda« og »Samtryggingar ísl. botnvörp- Hann var í stjórn ýmsra hlutafjelaga hjer í