Óðinn - 01.08.1933, Blaðsíða 2
58
ÓÐINN
Rvik, og um skeið einn af forstjórum Lands-
verslunarinnar.
Hann var lengi oddviti Garðahrepps, en síðar
í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, og vann með atorku
að framfaramálum bæjarins.
Þegar Hannes Hafstein í fyrsta sinn gerði
fulltrúa fyrir sjávarútveginn að konungkjörnum
þingmanni, varð Á. Fl. fyrir valinu. Yar hann
konungkjörinn þingmaður frá 1905 — 1912, en
fyrsti þingmaður Gullbr.- og Kjósarsýslu 1924—
1925, og einn af stofnendum íhaldsflokksins.
Árið 1925 veiktist hann og lagði þá niður
þingmensku. Fór hann skömmu síðar utan sjer
til lækninga, komst aftur á fætur, en náði aldrei
síðar fullri heilsu. 1931 Huttist hann alfarinn af
landi burt til Kaupmannahafnar og ljetst þar
hinn 13. sept. f. á.
Árið 1892 kvæntist hann Þórunni Stefáns-
dóttur, fósturdóttur sjera Þórarins Böðvarssonar
í Görðum, og liflr hún mann sinn. — Þau hjón
eignuðust ellefu börn, og eru níu þeirra á lífi.
Ágúst Flygenring var lágur meðalmaður, þrek-
vaxinn og vel á sig kominn. Sviphreinn og svip-
mikill, ennið mikið og hátt, snareygur og fas-
mikill, svo að gustur stóð af honum hvar sem
hann fór.
Hann var einn merkastur íslendingur sinnar
samtiðar og bar margt til. Hann var maður vel
viti borinn og mentaður, að þekkingu og í allri
framkomu, drenglyndur, ör og ekki altaf orð-
var, en hreinskilinn og einlægur, einarður og
kjarkmikill, eljumaður og starfsmaður, alvöru-
gefinn, en þó glaðastur með glöðum, hjálpfús,
greiðvikinn og gjöfull og gestrisinn, sem þeim
einum er gefið, sem fæddir eru til höfðingdóms.
Var hann jafnan sjálfur svipurinn og bragðið,
og gerði sjer engan mannamun. Leið öllum vel
hjá honum og hinni ágætu og mikilhæfu konu
hans, jafnt háum sem lágum, og er því gest-
risni þeirra alveg viðbrugðið í þessu gestrisn-
innar landi.
Sá, er þetta ritar, sá Ágúst Flygenring fyrst
um aldamótin, og hafði upp frá því af honum
mikil og vaxandi kynni, einkum þó eftir 1915.
Unga menn laðaði hann að sjer með orð-
hepni sinni, glaðværð og karlmannlegu viðmóti,
og sóttust allir eftir að vera með honum. Og í
allri samvinnu um alvörumálin, hvort heldur
var á sviði stjórnmála eða atvinnulifsins, var
hann einstakur maður, því enda þótt hann hefði
haldbetri þekkingu og meiri lífsreynslu en flestir
aðrir og væri að eðlisfari ráðríkur, þá var hann
svo samvinnuþýður, að hann hlýddi með gaum-
gæfni á tillögur annara, og vildi jafnan það eitt
hafa er rjettast sýndist. Hafði hann því mikil
og góð áhrif á hvert mál, er hann hafði með
höndum, og verður farsæld og nytsemi þess
starfs seint rakin.
Hjer á landi eru þess óteljandi dæmi, að menn
hafi af sjálfsdáðum og eigin ramleik brotist úr
fátækt og ýmist til menta, fjár eða metorða.
Ágúst Fiygenring lagði undir sig öll þessi
draumalönd hins fátæka en framgjarna æsku-
manns, en það auðnast fæstum.
Ágúst Flygenring hafði mikil afskifti af opin-
berum málum, bæði í hjeraði og á Alþingi.
Sómdi hann sjer vel í hóp stjórnmálamanna
og mun hafa haft gaman af þeim viðfangsefn-
um. En þótt hann væri bæði vinsæll og vel
metinn, jafnt af samherjum sem andstæðingum,
og hvorutveggja að verðleikum, þá gat hann
sjer þó ekki þar þann orðstír sem lengst mun
lifa. Afrek hans, þau er af bera, liggja á sviði
atvinnulifsins, því hann var einn, og ekki sistur,
af framherjum þeirrar fámennu sveitar, sem
stórstígust hefur verið á framfarabrautinni alt
frá landnámstíð.
1 baráttunni við sjálft lífið, við óblíða íslenska
náttúru, fátæktina, deyfðina, fáfræðina, og seinna
í lifinu við öfundina, — í þeirri baráttu var
Ágúst Flygenring hinn ósigrandi og ósigraði vík-
ingur, sem engin járn bitu og aldrei Ijet bugast,
hversu sem á mæddi. Á þeim vettvangi vann
hann sína stærstu sigra, sjálfum sjer til vegs og
þjóð sinni til blessunar og farsældar, og þar
stendur minning þessa máttarstælta meiðs um
ókomna tima sem óbrotgjörn sönnun þess,
hvers mannvit og mannkostir megna.
Ólafur Thors.
Ágúst Flygenring heima í Hafnarfirði.
Þegar jeg geng vestur í bæinn og horfi á húsið,
þar sem Ágúst Flygenring bjó, þá fer um mig
einhver ónotaleg tilfinning. Þetta vill ekki fara
af mjer, þó nokkur tími sje liðinn síðan að
Ágúst Flygenring bjó þar og starfaði.
Umskiftin eru mikil, skarðið stórt, sem dauð-
inn hefur höggvið i hóp athafnamanna þessa
bæjar.