Óðinn - 01.08.1933, Síða 14
70
ÓÐINN
Dr. Þorkell Jóhannesson.
Hann fjekk doktorsnafnbót við háskólann í Kaup-
mannahöfn á síðastliðnu vori, fyrir ritgerð um verka-
fóik á Islandi í fornöld,
og kjör þess. Er það sama
ritgerðin sem hann lagðí
hjer fram í kepninni
um söguprófessorsembætt-
ið við íslenska háskólann
fyrir nokkru, en að sjálf-
sögðu aukin og endur-
bætt. Ritgerðin er prent-
uð og er á þýsku, all-
stór bók. — Um þetta
efni hefur lítið verið rætt
eða ritað áður en kepp-
endurnir um háskóla-
embættið hjer fengu það
til úrlausnar, svo að rit
Þorkels leiðir athygli að
nýju og allmerkilegu rann-
sóknarsviöi. Höfundurinn
er norrænufræðingur frá háskólanum hjer, þingeyingur
að ætt; hefur áður verið kennari við Samvinnuskólann
og forstöðumaður hans, en er nú starfsmaður við
Landsbókasafnið.
silfurgrár á broddunum (silfurmelrakki — silver-
fox) kostar á Englandi 45 pund, þau skinn koma
frá Hudsonsflóa. Mórauð frá Islandi og Grænlandi
15 sh., hvít 3 til 6 sh.
Vindur gekk til útnorðurs um kvöldið og
síðan til vesturs, var þá eigi siglt um nóttina,
en um morguninn var kominn aftur landsynn-
ingurinn gamli.
1. október. Bjart veður og gott 37,5° F. hitinn.
Siglt til lands, sjeð land glögt um kvöldið. Tungl-
skin fagurt. Siglt og gufað. Isjakar háir en strjálir.
2. október. Hægur landsynningur. Gufa uppi.
Strjálir og háir jakar, yfir 100 fet á hæð. —
Komið í höfn í Fredreksvon um nónbil.
Kolonial-bestyrer Tvede og prestur Barfoed
borðuðu hjá oss; vjer fórum í land, drukkum
madéra og reyktum vindla ets. ets.
3. Luktafantinum og mjer boðið til að spila
lumbru hjá presti, Tvede var 4. maður.
4. Okkur boðið að spila hjá Tvede, þar var
prestur og stýrimenn hinna skipanna, því hjer
liggja 3 kaupför, öll að sækja Kryolith. — Vjer
borðuðum um borð og var þá drukkið fast.
Minni voru: skipstjóra vors, Engladrotningar,
forseta Bandamanna, Danakonungs, Daviðs, Svia
og Norðmanna konungs, stýrimaður Olsen frá
Arendal flutti. Síðan var gengið á land og etið,
drukkið, reykt og spilað hjá Tvede.
5. Allir enn í landi. Þá var dansleikur um
kvöldið, jeg horfði á dansinn. Grænlendingar
syngja vel og dansa. Um kvöldið snætt hjá báð-
um, jeg og skipstjóri hjá Tvede, og borðaði
jeg þá hreinasteik fyrsta sinn. — Tvede gaf
mjer hún, kona hans múffu og skó.
6. Skotið 27 skot í landi. Þann dag og jóla-
dag er skift millum allra Grænlendinga 1 keks-
köku og pela af grjónum. Veður var alla þessa
daga heiðskirt og lygnt með frosti -+- 7 stig mest
á Reumeur, en þenna dag var frostlaust. Snjó-
föl var á jörðu. Landslag likt útskerjum í Nor-
egi, lyng, geitnaskóf, fjallagrösin og lítið gras
annað. Geitur eru nokkrar og þrífast þær vel,
nokkrar kindur af dönsku kyni, er eigi eru nógu
harðskiftnar, en íslenskar mundu þola það all-vel.
Steinar: Granit og Gneiss. Enginn málmur í
Grænlandi borgar kostnaðinn nema »Kryolith«,
og þó óvíst. Landið er að sökkva. — Tvede
sagði oss, að prins Napóleon hefði tekið segl og
keðju frá skipi, er þá með timburfarmi var
rekið upp undir isblinkinn fyrir norðan Fred-
reksvon; menn og nafn vantaði á skipið. Um
kvöldið vorum vjer allir boðnir til prestsins, og
komu allir nema skipstjóri, liklega fyrir það,
að hann var dálítið reiður yfir þvi, er meira
var haít við Shaffner, er skál hans hafði verið
drukkin með lukkuósk fyrirtækisins. — Davíð
drakk minni bæjarstjóra í nafni skipstjóra, og
fórst honum vel. Tvede sjálfur svaraði með
því, að skjóta af fallbyssu.
7. Jeg hlýddi á messu Grænlendinga, þeir
syngja vel, en eigi hafa þeir guðrækni nema
sjer til gamans. Barnakennarinn (kateket) syng-
ur vel á organ. — Þann dag vorum vjer boðnir
til Tvede.
8. Bar litið til tíðinda. Við Slesser fórum út í
Varðey. Þá var frostlaust um kvöldið, en áður
var jafnan frost, hreint veður og logn að mestu.
9. Regn og krapi. Þeir ofursti og luktafantur
eru enn á Iand gengnir. Feir eru að koma sjer
í mjúkinn etc. etc. — Hláka og regn.
10. Regn og hláka. Presturinn var til miðdegis
hjá oss. Hann og aðrir prestar hafa 200 rd. til
að gifta sig fyrir, því að prestar hafa oft átt
börn hjer, enda vilja grænlenskar stúlkur eigi
vera hjá þeim, sem eigi sofa hjá þeim.