Óðinn - 01.08.1933, Page 26

Óðinn - 01.08.1933, Page 26
82 Ó Ð I N N voru þeir Árni Árnason, Guðmundur Kr. Guðmunds- son, Konráð R. Konráðsson og Páll Sigurðsson. Þeir stóðu sig allir svo vel, að jeg hafði sjaldan þá ánægju að þurfa að finna að nokkru við þá, og jeg var mjög hreykinn af þeim. — Margir fleiri piltar en mínir fjárhalds drengir komu til mín og voru mjer til mikillar gleði. ]eg bauð þeim á sjerstaka fundi fyrir skólapilta eingöngu, og voru það jafnan meðal minna bestu kvölda. ]eg lagði ríkt á við alla skólapilta, sem voru í fjelaginu, að lesa til hlítar lexíur sínar áður en þeir kæmu á fund. — Það yrði ærið langt mál, ef jeg ætti að nefna alla þá skólapilta, sem á þeim árum voru mjer til yndisauka og auðg- uðu líf mitt, væri mjer samt slík upptalning afar- ánægjuleg, og það svo að jeg er hræddur um að jeg yrði alt of hreykinn, ef jeg slepti mjer út á þá braut. ]eg man hve mjer hiínaði um hjartaræturnar af fögn- uði eitt sinn, er jeg var heima hjá Steingrími Thor- steinsson, sem þá var orðinn rektor. Við vorum að tala um K. F. U. M. meðal annars. Þá spurði hann: »Er ekki þessi piltur (sem hann nefndi) hjá yður í fjelaginu?« ]eg kvað svo vera; það var einn af »dúxunum«. — »]á, jeg þóttist vita það«, sagði hann. »Og þessi? Og þessi?« — »]ú«. — Svo spurði hann um heilmarga og voru það alt góðir námsmenn. Svo bætti hann við: »]á, mjer finst jeg geta greint þá úr, því þeir skera sig úr að siðprýði og öllu góðu«. ]eg var afar hreykinn með sjálfum mjer. Svo spurði hann um einn, sem heldur þótti gáfnatregur, og var frem- ur neðarlega í bekk, og sagði: »Er hann ekki einn af yðar sjerstöku vinum?« — ]eg fjekk alt í einu löngun til að afneita honum, þótt mjer þætti verulega vænt um hann, en jeg skammaðist mín um leið fyrir lítilmenskuna og svaraði játandi, en bæiti svo við: »Hann á dálítið erfitt með að læra«. — Þá sagði Steingrímur: »]á, hann er nú samt eitt af ljósum skólans, því siðprýðin og iðnin er svo framúrskar- andi; hann kemst leiðar sinnar*. — Mjer hefur altaf sviðið undan, er mjer hefur dottið í hug þessi augna- bliks freisting til að afneita vini mínum. — Stein- grímur Thorsteinsson var ætíð mjög velviljaður fje- laginu og veitti starfi mínu góðsama athygli og vel- vilja. Annar maður var líka sá, er á þeim árum hafði mikla þýðingu fyrir mig og örfaði mig mikið. Það var öldungurinn Páll Melsteð. Hann var ávalt vel- unnari starfsins, og fjör hans og gleði, þótt hann væri nær blindur orðinn og kominn á tíræðisaldur, hresti mig oft og hvatti mig áfram. Hjá honum og konu hans, Þóru Melsteð, átti jeg margar ljúfar stundir. En af öllum mínum vinum í Latínuskólanum varð enginn mjer hjartgrónari en Árni Árnason. Hann var dulur, en gat þó verið glaður og kátur. Hann var einn sá skylduræknasti piltur, sem jeg hef þekt, og svo staðfastur í fyrirætlunum sínum, að engan hef jeg þekt slíkan. Hann var, eins og áður er sagt, besti námsmaður og latínumaður góður. Þegar hann var í 5. bekk, vorið 1905, höfðum við komið okkur saman um að taka okkur morgungöngu kl. 7 — 8, til þess að æfa okkur í að tala latínu. Á þeim tíma máttum við ekki segja nokkurt íslenskt orð, í hve miklum vandræðum sem við vorum. Á hverjum morgni kom okkur saman um það efni, sem við skyldum tala um næsta dag, og gátum svo safnað orðum frá því sviði, sem um átti að ræða. Þessar latnesku morgunstundir voru mjer mjög unaðslegar og hafði jeg mikið gagn að þeim. Vorum við í þessum samtölum kennarar hvor annars. Árni var heimspekingur og kristinn piltur. ]eg kallaði hann »kristna stóuspekinginn*. Hann tók öllu með jafnaðargeði og var alt af ánægð- ur með kjör sín, og ljet ekki kröfur til þæginda lífs- ins aukast, þótt ofar kæmist á mentabrautinni. Mætti skrifa um mentaferil hans langt mál. Hann og Sig- urður Nordal voru keppinautar um »dúx«-4ignina í bekknum og veitti ýmsum betur. Þeir unnu hvor öðrum sigursins og var mjer mikil unun að þessari samkepni, báðir voru þeir »gentlemen« að hjarta- rótunum. ]eg lærði mikið af þeim, og mörgum öðrum af vinum mínum í Latínuskólanum um þessar mundir. Um haustið 1905 gerðist Árni, af fjárhagslegum ástæðum, húskennari á Bessastöðum, hjá Skúla alþm. Thoroddsen. Mjer þótti það leitt, því jeg þóttist sjá, að hann með því mundi fyrirgera ágætiseinkunn sinni við stúdentsprófið, en það varð að vera svo. ]eg saknaði hans mikið um veturinn 1905-6, en við skrifuðumst á, á latínu, og fjekk jeg löng og góð brjef frá honum. Það bætti úr skák. — Ný reglugerð fyrir skólann var komin á, að mig minnir 1904, og var mjer illa við hana, því latína var, eftir henni, kend að eins í þrem efstu bekkjunum. Komu nú upp bekkir latínulausir. ]eg fjekk þó allmarga pilta, eftir nýju reglugerðinni, til að hafa einn latínutíma hjá mjer á viku. Kenslan var auðvitað kauplaus og hefði jeg verið ríkur, hefði jeg viljað feginn borga piltun- um kaup til þess að læra. ]eg hafði nú samt mikið upp úr þessum tímum. ]eg eignaðist vináttu piltanna, og hefur vinátta sú haldist við fram á þennan dag. — Ennfremur tók jeg vorin 1905 og 1906 allmarga pilta síðari hluta maí og júní, til þess að þjálfa þá undir upptökupróf. Það var einnig ágætur tími; voru

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.