Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Page 8

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Page 8
8 landi væri Htið um sild. Var þvi Hkt á komið með báðum, er hvorugur hafði rétt fyrir sér. Skoðun Andersons ruddi sér fastlega til rúms, og enginn hreifði mótmælum gegn henni á 18. öld, og á fyrri hluta 19. aldar gróðursettu nafnfrægustu vísinda- menn hana í kenslubókum sinum, og skal til nefna um það kenslubók Okens 1817, margar útgáfur af kenslubókum Blumenbachs og Cuviers (2. útg. af Régne animal 1830). Og hver gat þá efazt um, að kenning þessi væri rétt, en af henni leiddi hin tvöfalda skoð- un, að allar síldargöngur væru á mjög hraðri ferð, yrðu ekki handsamaðar nema af og til, og aptur, að þær að vöxtunum til yrði mjög misjafnar. J>ar sem síldar- veiðar eigi voru í fjörugum gangi, hlaut þetta að tálma mjög byrjun á verklegum framkvæmdum. J>ó skal þessgetið, að maður nokkur, Gilding að nafni, kom með aðra skoðun i ameríkönsku timariti 1786. Eptir henni átti hin sama síld að sýna sig á ýmsum tímum og stöðum í einhvers konar sporbaugs- göngu, sem færi eptir sólarhæðinni, þannig að sildin væri 1 stöðugri göngu til þess að komast hjá of mikl- um kulda eða hita. þessi sporbaugsganga átti að ná yfir ekki minna svæði en 47 breiddarstig frá norðri til suðurs, og frá austri til vesturs milli Norðurálfunn- ar og Ameríku. J>að var nú að visu á hinn bóginn, að einstöku náttúrufræðingum, svo sem Bloch og Nilsson, óx mjög í augum þessi langa ganga, er allir lögðu trúnað á. Bloch efaðist stórlega um hana í riti, er hann gaf út á þýzkalandi 1783, og hinn nafnfrægi náttúrufræðing- ur Svía, prófessor Nilsson, gékk harðlega á móti henni f ritum, er hann gaf út 1826 og 1828. Hann bar eigi svo mikla þekkingu á aðrar sildarstöðvar, en við strendur Svíarikis, að honum gæti komið til hugar að neita þeirri sögu Horrebows, Egedes, Fabriciusar, og

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.