Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Side 16
16
ekki miklu á móti ofsóknum fiska og dýra frá því að
sildin skreppur úr hrognhýðinu, og meðan henni get-
ur enzt aldur. Enskur rithöfundur fer um atriði þetta
þeim orðum, að frá því eina vissa megi ganga út til
byrjunar, að frjósemi fiskanna sé alkunn, og svo megi
gjöra áætlun nokkra um fjölgun þeirra, þannig, að
menn fái ljósa hugmynd um, hvort sú hætta af manna-
völdum sé búin þeim, að það geti munað miklu.. þ>að
er þannig alkunnugt, að laxhrygnan hefir um ioooegg
á hvert pund af öllum þunga sínum; í 20 fjórðunga
styrju eða störfiski eru taldar 7 millíónir, Leuwenhaupt
reiknaði, að í þorski væri 9V2 millión. J»að er nú ó-
hætt að telja í honum 3,400,000 egg, i flyðrunum
1,250,000, i kolanum 1,000,000 og í sildinni yfir 35,000;
Milne Edwards telur um 60,000 í meðalsíld. Ef menn
nú til reynslu ganga út frá þessum eggjafjölda síldar-
innar og telja hann 36,000, þá er það sjálfsagt, að þau
eigi öll ungast út. Sé nú talið, að helmingur farist,
verða eptir 18,000 seiði. Nú verða þau fyrir ýmsum
áföllum, meðan þau eru litil, og væri svo ráð fyrir
gjört, að annaðhvort þeirra færist á næstu 3 árum, þá
yrðu þó eptir 9,000. Af þessum upp komnu síldum er
nú helmingur svilfiskur oghelmingur hrygnur. Ohætt
er af að taka, og ef vér setjum nú svo, að eptir
hafi orðið 4000 hrygnur i gotfæru standi, þá verður
afkvæmi þeirra í eggjum sú tala, sem kemur út með
því að margfalda hrygnufjöldann 4,000 með 36,000 eggj-
um úr hverri þeirra, eða 144 milliónir. J>etta er nú
ekki nema afkvæmi tveggja sílda, sem hér ræðir um,
og fyrir eitt ár, og ekki af þeim óteljandi millíónum
millióna, sem eru við strendur vorar og sem
margfaldast á hveiju ári. Af þessu er auðsætt, að það
sem maðurinn dregur frá viðkomunni, verður næsta
litið, og að henni af mannavöldum er ekki búin sérleg
hætta fyrir gjöreyðingu. J>að er að likindum ekki