Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1883, Qupperneq 82
82
veiði hennar megi aukast. Eg er viss um, að hin
bezta undirstaða fyrir framförum vorum er efling á
mentun og kunnáttu, eigi einungis alment, heldur og
i sérstökum verklegum greinum. f>að er til þess að
stuðla að þessu, að eg hefi ráðizt í að rita bæði um
lax og sild, og hvetja til framfara, því eg held, að ekki
sé of sagt, að fiskiveiðar hér á landi gæti næst á eptir
landbúnaðinum, sem á að vera aðalatvinna vor, meðan
vér erum ekki fjölmennari, orðið enn meiri auðsupp-
spretta en þær nú eru, ef menn vildu leggja meiri
alúð og kapp á þær en hingað til hefir verið, og um
fram alt ekki láta ráð sitt vera á reiki með þær, eða
fylgja gömlum siðum og ósiðum, en loka augunum
fyrir því, er fram fer erlendis. Ár frá ári verður öll
landvara dýrari, og ef um það er að gjöra, að finna
fæðu, sem geti verið bæði ódýr og nóg af, þá er hafið
það eina forðabúr, sem stöðugt má leita til. íslandi
er sá kostur veittur, að það, ef vér kostum kapps um
að draga sem mestan afla úr sjónum, getur orðið eitt
hið bezta forðabúr fyrir alla Norðurálfuna.
Að þessu á bæði þjóð og þing að starfa. það
er í vorar eigin þarfir. Leiðin er löng, en með hygg-
indum má hún verða greiðfær.