Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1897, Blaðsíða 6

Eimreiðin - 01.01.1897, Blaðsíða 6
6 í löggjöf landsins, án þess að njóta aðstoðar og leiðbeiningar embættismannanna. Þetta lætur kannske illa í eyrum sumra manna, en satt er það samt. Það vantar ekki að nóg sje til af skynsöm- um bændum á íslandi t. d. — kannske meira en í nokkru öðru landi —, en þeir eru flestir líkir góðum akri, sem gæti verið frjór, en er ófrjór, af því hann vantar góðan áburð. Náttúru- greindin ein er ekki nægileg til þess að geta orðið góður löggjafi, það þarf líka dálítið, og helzt meira en dálítið, af þekkingu til þess. Sje bóndinn þekkingarlítill, mun hann, hve skynsamur sem hann kann að vera að náttúrufari, jafnan verða töluvert ósjálf- stæður á þingi, af því hann rekur sig svo opt á, að embættis- mennirnir vita svo margt betur en hann, og hættir því við að halda, að þeir viti allt betur. Afleiðingin verður þá, að hann þorir ekki að reiða sig á sjálfan sig og sína skoðun, og lætur svo kannske aðra leiða sig á glapstigu, þó hann einmitt sjái hið rjetta betur en þeir. Þetta er meinið, og það mundi því koma að litlu haldi, þótt bændum yrði fjölgað að mun á þingi, ef þeir hefðu ekki meiri þekkingu en bændur nú almennt hafa, þvi þeir fáu embættismenn, sem þar sætu, mundu í flestum málum ráða lögum og lofum eins fyrir því. Það væri því að vorri hyggju ekki hyggilegt, að gera gagn- gerða breytingu á skipun alþingis að svo stöddu, þrátt fyrir þá miklu annmarka, sem á henni eru. Það verður að gera annað fyrst. Það verður að breyta stefnunni i menntámálum vorum. Sú breyting er nú að vísu þegar hafin, en það verður að taka dýpra í árinni, en hingað til hefur verið gert. Það verður að af- nerna þær veiðibrellur, sem nú er beitt af hálfu hins opinbera til þess að tæla alla hina helztu hæfileikamenn vora inn á embættis- leiðina. Sem stendur er ekki í nokkru landi eins hægur aðgangur að lærðri skólamenntun og á Islandi. I Danmörku verða nem- endur i lærðum skólum að borga iooo kr. hvert skólaár fyrir hús- næði, fæði og kennslu, og þeir, sem hafa sjerstök herbergi til íbúðar, verða að borga enn þá meira, allt að 1400 kr. um árið. Þeir, sem eiga heima í bæjunum, þurfa vitanlega ekki að borga nema kennslukaupið, sem er 12—18 kr. fyrir hvern mánuð allt árið (eins fyrir sumarmánuðina). En hvernig er þessu hagað hjer á landi? Þannig að nemendurnir fá ókeypis kennslu og heimvist í skólanum, ef þeir vilja, og þar á ofan í ábæti allt að 200 kr. fyrir fæði, skæði og bækur. Þegar þeir svo eru komnir úr latínu-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.