Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1897, Blaðsíða 67

Eimreiðin - 01.01.1897, Blaðsíða 67
6? :saman enskum og islenzkum orðum, sem hafa likt hljóð, en eru ólíkrar merkingar, t. d. »want« og »vanta«. fó bar meira á þessu í Winnipeg en í Argyle. Par heyrði jeg opt sagt (einkum yfir borðum, þegar verið var að bjóða rjetti): »Hvað vantar þig?« (What do you want?), »vantar þig dúfnasteik eða uxasteik?« í staðinn fyrir: Hvað þóknast þjer, hvers óskar þú o. s. frv. Efnahagur Argylinga má yfirleitt kallast góður, og þar eru ekki allfáir bændur, sem eru komnir í svo góð efni, að þeir mundu kallaðir ríkir menn á Islandi. Auðvitað eru margir býsna skuldugir, enda er það engin furða, þar sem byggðin er svo ung og flestir hafa komið þangað fjelitlir eða jafnvel blásnauðir. Það þarf ekki lítið fje, til þess að kaupa hin nauðsynlegustu akuryrkjutól, en okurvextir svo miklir af peningalánum, að mjer blöskraði að heyra. Veitir þvi erfitt að losast úr skuldunum, þó ágóðinn af búskapnum sje töluverður. Sem dæmi upp á efnahag manna og ágóða af búskapnum skal jeg skýra frá búslóð eins bónda, sem mjer er vel kunnugt um. Er hann talinn dugnaðar- maður, en enginn efnamaður, heldur að eins vel bjargálna. Hann byrjaði búskap fyrir 6 árum með eitthvað y—600 dollara fjárstofni og keypti sjer þá jörð. Nú er land hans og byggingar metið á 3000 dollara, og af verkfærum á hann 10 plóga (á 25 dollara hver), 3 herfi (á 20 d.j, 3 sáðvjelar (á 80 d.), 3 kornskurðarvjelar (á 175 d.), 2 eimþreskivjelar (önnur á 3000 d., verð hinnar man jeg ekki), 1 sláttuvjel (75 d.), 1 rakstrarvjel (30 d.), 3 vagna (á 75 d.), 1 skemmtivagn (100 d.), 2 sleða (á 25 d.) og mörg aktygi (c. 200 d.). Af skepnum á hann 18 hross (c. 2000 d.), 16 nautgripi (c. 250 d.), 100 svin að mfcð töldum grísum (c. 5 00 d.), auk alifugla o. s. frv. Má þvi telja eign hans nú að minnsta kosti 10,000 dollara, en á henni hvilir 3000 d. skuld. Hefur hann þá grætt á búskapnum rúmar 4000 kr. á ári siðan hann byrjaði búskap, og hefur þó uppskera hans stundum brugðizt hraparlega. — Ríkastir eru þeir, sem lengst hafa búið og flest börn eiga upp komin, þvi þar er meiri eign i börnunum en á Islandi. Ekki eru sveitarþyngslin, því þurfa- menn eru þar engir. Má það merkilegt heita, þvi ólíklegt er, að enginn af öllum þeim hreppsómögum, sem sendir hafa verið frá Islandi til Ameríku, hafi lent þar. En þeim hefur kannske lærzt að neyta betur krapta sinna, enda mun svo um flesta, er þar búa. Menn hafa mátt leggja mikið á sig og haft við mikla örðugleika að striða, meðan menn vóru að koma fótum undir sig, því ekki þrífast ónytjungar þar fremur en annars staðar. Einkum virðast giptar konur ekki hafa átt sjö dagana sæla, nje heldur eiga það enn, þvi þær eru tiðast einar sins liðs, stund- um með stóran barnahóp. Kaupgjald er svo hátt, að frágangssök er fyrir flesta að halda vinnukonur. En þetta breytist sjálfsagt eptir þvi sem efnin vaxa. Og að þau muni brátt vaxa hjá flestum, er engum vafa bundið. Hverjum, sem hefur óvilhöll augu, hlýtur að vera ljóst, að byggðin á mikla og glæsilega framtíð fyrir höndum. Að sönnu geta næturfrost og hagljel eyðilagt alla uppskeru eða mestan hlut hennar á einni nóttu (og slíkt kom einmitt fyrir i sumar hjá einum ísl. bónda, meðan jeg var vestra), en uppskeran er þá hitt veifið svo ríkuleg, að menn eru færir um að þola nokkur áföll. — En þótt Argyle hafi reynzt 5*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.