Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1897, Qupperneq 7

Eimreiðin - 01.01.1897, Qupperneq 7
7 skólanum, stendur þeim til boða mikill fjárstyrkur, hvort sem þeir vilja heldur fara utan, á háskólann, eða lesa hjer við presta- eða læknaskólann. Eðlileg afleiðing af þessu er, að ofmikill fjöldi gáfaðra og framgjarnra unglinga ginnist inn á þessa embættisleið, en afrækir aðrar leiðir, sem kannske væri bæði sjálfum þeim og þjóðinni miklu hollara að þeir gengju. Þegar þeir svo engin embætti geta fengið hjer, leita þeir af landi burt. Ekki allfáir Is- lendingar hafa af þessum ástæðum sezt að í Danmörku og sumir farið til Ameriku. En er það nú rjett, að vjer, þessi fátæka þjóð, sjeum að ala upp embættismenn handa öðrum þjóðum? Væri ekki nær að verja því fje, sem nú gengur i ölmusugjafir til embættis- mannaefna, til að mennta aðra atvinnuflokka í landinu ? Það er ein mótbára, sem alltaf kemur fram, þegar talað er um að minnka ölmusurnar við latínuskólann, og hún er sú, að það sje synd að gera það, af því að maður með því hindri efnilega fátæka pilta frá að ganga þá leið. En þessi mótbára er ekki ægileg í vorum aug- um. Fyrst og fremst er nú að athuga, að synd gagnvart einurn einstaklingi vegur ekkert á móti synd gagnvart heilli þjóð. Og að þetta sje synd gagnvart þjóðinni hefur sýnt sig í því, að einmitt þetta háttalag hefur orðið þess valdandi, að vjer höfum misst alla vora beztu hæfileikamenn af hinni praktisku leið lífsins. Hvers vegna eigum við svo fáa menntaða bændur, verzlunarmenn, iðn- aðarmenn o. s. frv. ? Af því að allir hinir framgjörnustu hæfi- leikamenn vorir hafa verið ginntir inn á embættisleiðina. Það gat verið sök sjer, meðan svo var ástatt hjer á landi, að leiðin gegn um latinuskólann var svo að segja eini vegurinn til mennta. Þá gat hin ofannefnda mótbára haft við rök að styðjast. En nú eru til aðrir skólar, sem geta veitt fullt eins notasæla menntun fyrir lífið eins og latínuskólinn, og því engum fyrirmunað að leita sjer menntunar, þó leiðin gegnum hann sje gerð dálítið þrengri og ógreiðfærari. Með því væri því ekki drýgð synd gagnvart nein- um einstaklingi, heldur einungis framið góðverk á þjóðinni og líklega um leið á mörgum þeim einstaklingi, sem annars hefði kannske ófyrirsynju álpazt út á lærða veginn sjer til skaða og skap- raunar síðar meir. Vilji menn koma með þá mótbáru, að hinir skólarnir sjeu enn svo ófullkomnir, þá er ráð við því, og það er að verja því fje, sem nú er varið í ölmusur til embættismanna- efna, til þess að bæta þá. Það er nú svo komið, að vjer fáum nóga embættismenn, þó vjer kaupum ekki vonina í þeim dýrum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.