Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1897, Page 13

Eimreiðin - 01.01.1897, Page 13
i3 ast betur á þessa lögfræðingapólitík, sem í eðli sínu er ekkert annað en sú pólitik, sem Danir kölluðu nationalliberalisme (= þjóð- frelsispólitík), endurplöntuð í íslenzkum jarðvegi. En sú pólitík, álíta menn að hafi gert Danmörku mestan skaða á þessari öld. Eað vóru líka einmitt lögfræðingarnir, sem vóru forvígismenn hennar, og þar var beitt alveg sömu aðferðinni og hjá oss. Þjóðin var gerð að goði og sett upp á háan stalla, og svo var heimtað, að allir fjellu fram og tilbæðu goðið, og færðu því fórnir, —■ eink- um fórnir —, svo að frelsið og árgæzkan ykist í landinu. Og þeir, sem mögluðu og vildu ekki blóta, vóru brennimerktir sem land- ráðamenn og föðurlandssvikarar og lýstir sekir um goðgá, óalandi og óferjandi. Það stóðust rnenn ekki og tóku sem óðast að fórna. En svo þegar farið var að gá að, hvað hefði orðið af öllum fórn- unum, þá kom það upp úr kafinu, að það haíði farið með þær alveg eins og í gamla daga. Það vóru ekki goðin, sem nutu fórn- anna, heldur prestar þeirra. Eins reyndist það hjer, að það var ekki þjóðin, sem naut fórnanna, heldur frelsispostular hennar. En frelsið og árgæzkan, sem þeir höfðu lofað, kom ekki, nema í þeirri mynd, að landið týndi stjórnarskrá sinni og sjálfsforræði í hendur fáeinna embættismanna og auðmanna og missti mikinn hluta af landinu fyrir handvömm í óvina hendur. En þjóðfrelsispostul- arnir sátu að blótveizlu og vóru fullir og feitir. Þá opnuðust augun á alþýðunni. — En það var um seinan. 167n- '96- E i ð u r. i. Konan í Hamravík var alltaf að líta út við og við seinni hluta dagsins; hann hafði verið svo hvass og ískyggilegur seinni part- inn; það var ekki álitlegt að vita af sínum úti á sjó, þegar hann stóð eins og í dag. Það var svo sem alkunnugt, að þegar hann hlóð skýjunum svona saman í blásvarta kólgu yfir Lamárbotnana, og stóð svo framyfir Hrútafellið og Suðurásana, þá var ógaman að vera á sjó inn með ströndinni. Hann var þá vanur að reka þá feigðarbylji

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.