Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1897, Page 14

Eimreiðin - 01.01.1897, Page 14
14 eins og byssuskot fram úr skörðunum beggja megin við Nátt- málahnúkinn, að fáum var fært að varast þá. Þarna komu þeir eins og örskot sitt úr hverri áttinni í kringum hnúkinn; optast fyrst á hásunnan, svo á útsunnan, svo varð blíðalogn svo sem hálfa mínútu, meðan hann var að sækja í sig veðrið; og svo kom hann rjúkandi á norðvestan, alveg eins og byssuskot allra snöggv- ast; svo varð hlje, og sletti smábyljum á vestan; þetta gekk upp aptur og aptur; en ekki var nú samt ætíð að treysta á þessa röð; það gekk alla vega til í kringum það, fellið það, sögðu þeir, sem kunnugir voru — að minnsta kosti sá, sem sagði mjer þessa sögu. Jón hreppstjóri í Hamravík hafði brugðið sjer inn i kaupstað morgninum áður, og gert staðfastlega ráð fyrir því að koma aptur í kvöld. Það var búizt við því, að hann hefði losað sig ekki seinna en um hádegi, og farið þá af stað. Þá var hann ekkert farinn að hvessa ytra, og því var konan hans, hún Helga, svo hrædd um að hann hefði farið, eins og hann hafði gert ráð fyrir. Hann var líka maður, sem var vanur að efna það sem hann sagði. Reyndar var hann duglegur sjósóknari, hafði góðan bát, og var allra bezti stjórnari. Hann hafði þrjá menn með sjer; einn var Bjarni sonur hans, liðlegasti sjómaður, enn óharðnaðnr, ekki nema 17 vetra að aldri. Hinir voru tveir miðaldra menn, sem heima áttu í hjáleigu einni lítilli eða grasbýli þar neðan við túnið, niðri við sjávarbakkann. Þeir hjetu Þortseinn og Halldór; höfðu þeir ofan af fyrir konum og börnum svona allt að því eins og þeir gátu, en ljetu guð, góða menn og sveitina bæta úr þvi, sem til skorti. — Hann var alltaf heldur að hvessa. Það setti útsynnings- hryðjur ofan í drögin, og kernbdi hrakviðrið fram af Náttmála- hnúknum eins og blágráa flík, sem lamdist fram á sjóinn. Helga i Hamravík stóð frammi í bæjardyrunum, og horfði hvast og stöðugt út á sjóinn. Hjá henni stóðu tvö börn ung, piltur og stúlka, á að gizka á fjórða og sjötta árinu. Þau stóðu lika, sitt við hvora hlið hennar, og horfðu líka út á sjóinn, af því að þau sáu móður sína gera það. En það var ekkert að sjá; sjóinn gryllti að eins, grábleikan, með einlægum hvítum skellum og deplum, í gegnum hrakviðrið. Hún starði samt. Biksvartur illviðrisbakkinn færðist yfir hægt og hægt. Börnin voru eitthvað að blaðra, enn hún gaf því eng- an gaum.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue: 1. tölublað (01.01.1897)
https://timarit.is/issue/178854

Link to this page:

Link to this article: Skipun alþingis.
https://timarit.is/gegnir/991006167389706886

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

1. tölublað (01.01.1897)

Actions: