Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1897, Side 35

Eimreiðin - 01.01.1897, Side 35
35 ✓ Um leið og hann gekk hjá Þorkeli, hálfglotti hann út á vinstri vangann og hvíslaði: »Stóð jeg mig ekki vel?« »Jú,« hvíslaði Þorkell, og ljet hann ganga hjá. Þorsteinn settist hjá Halldóri, og sagði lágt um leið: »Nú er eg búinn — og stattu þig nú, bölvaður heigullinn!« Halldór hafði eins og staðið á öndinni á meðan Þorsteinn var prófaður; það var eins og hann sæti á glóandi kolum, eða þyldi ekki við fyrir flóm. En — fyrst Þorsteinn slapp svona vel •— »það er nú um að gera fyrir mig að sleppa líka.« Halldór var kallaður upp. Hann stóð upp, gekk að stólnum og settist. Hann var lágur maður vexti, lotinn í herðum, og gildastur um miðjuna. Hann var ekki ósvipaður steinolíutunnu 1 vextin- um. Hann var rauðleitur í andliti og bústinn, með moldgult hár og skegg, fremur lýjulegt og var það ævinnlega úfið. Augnaráð- ið var ódjarflegt, eins og augnalokin væri ofþung til þess, að hann gæti horft beint framan í mann. Neðrivörin var dökk af húð af tóbakslegi, sem þar hafði þornað og var holdgróin. I skegginu sat skorpa af óhreinindum í hörundinu. Sýslumaður fór nú að spyrja Halldór; sá var munur á fram- komu hans og Þorsteins, að hann svaraði sem fæstum orðum hann gat, en skýrt og glöggt. í öllu bar honum saman við Þor- stein, enda vóru spurningarnar líkar. En þó að sýslumaður spyrði hann einhvers annars, er þetta mál snerti, varaðist hann að segja neitt það, er gæti komið 1 bága við það, sem Þorsteinn hafði sagt. Eins var með spurningar prests; hann svaraði þeim svo, eins og hann væri að snúa prest af laginu. Það þurfti enginn að frýja . honum greindar, honum Halldóri, þegar hann nennti að taka á því. Hann var þá viss með að sjá um sig. Hann hafði staðið sig; það var ekkert meira um það að tala; honum var leyft að fara; hann gekk til Þorsteins, og sletti sjer niður á bekkinn aptur. Presturinn og fylgdarmenn hans gátu ekkert meira. Svo var ekki annað eptir en láta þá bændurna staðfesta sögu sína með eiði. Þegar það væri búið, þá væri ekki framar um neitt að tala. Jón hafði þá drukknað á undan syni sínum, og Bjarni átti að taka arf eptir hann. Það var þegar búizt við því, að láta þá vinna eiðinn. 3

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.