Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1897, Side 54

Eimreiðin - 01.01.1897, Side 54
54 jánsson (úr Reykjavík) og Guðjón Vigfússon (frá Klausturhólum). Vórum við þá þar saman komnir 5 landar, og mun það fremur nýlunda í Ham- borg, að svo margir Islendingar sjeu þar í einu lagi. Þennan dag og næstu nótt dvöldum við i Hamborg, og notuðum daginn til þess, að skoða bæinn og einkum hinn fræga dýragarð þar. Höfðum við góðan leiðtoga, þar sem Björn Kristjánsson var, sem þar var kunnugur hverjum kyma, enda ljet einkis ófreistað, til þess að gera okkur dvölina sem þægilegasta. Að rnorgni þess 28. maí kvöddum við Hamborg (kl. 9) og hjeldum með eimlest til hafnarstaðarins Cuxhaven. Þangað komum við kl. ii1/^ og stigum jafnharðan á hjólskip, sem notað var sem ferja, til þess að flytja okkur og fjölda annara farþega út í eimgamminn Normai:niu, og var okkur þar heilsað með hljóðfæraslætti; stóð heill flokkur manna (11) á þiljurn uppi og ljek á ýmisleg hljóðfæri. Fylgdi sá leikaraflokkur skip- inu og ljek jafnan nokkra stund hvern dag fyrri partinn og eins yfir borðum. Hvílikt bákn slikt skip sem Normannia er, geta þeir varla gert sjer í hugarlund, sem ekki hafa sjeð neitt þvílíkt. f*ótt hjólskip það, er ferjaði okkur út í N., væri öllu stærra en þau eimskip, sem til Is- lands ganga, fór okkur þó sem Pór og Loka, er þeir komu til hallar Útgarðaloka, þegar við komum að hliðinni á N., að við urðum að setja hnakkann á bak okkur aptur, áður við fengjum sjeð yfir upp, — upp á skipsstokkinn. Og ekki fannst okkur minna um, er upp var komið á þilfarið. Ef það hefur átt við, sem kveðið var um Orminn langa: Heil var stund frá hausi að sjá, þar til rnundu aptan á er hljóp á storðu boða, ýtar sporðinn skoða, hvað ætli mætti þá segja um Normanníu? Ormurinn var þó (»þat er graslægt var«) ekki nema 74 álnir (= 55^ alin dönsk), en N. er um 500 fet á lengd, 58 á breidd og 40 á dýpt. Hún er 8,716 að lesta- tali og gengur með 16,000 hestöflum. Má af þessu sjá, að hún gæti næstum því haft Islandsfarið Lauru (sem er 700 að lestatali) sem bát á þilfarinu. N. skríður 22 milur enskar á klukkustund og fer á liðugum 6 dögum milli New York og Southampton. Skipshöfnin ein er 340 manns, en hve marga farþega hún getur tekið, veit jeg ekki. Ekki er h.'ptt við sjóveiki á N., þótt hafrót sje nokkuð, þvi hún heggur ekki eða skoppar á öldunum, af þvi að lengdin er svo mikil, að jafnan eru margar öldur undir í senn, ein komin, þegar önnur er að falla. Rá er ekki hættan heldur mikil að sigla með henni, þvi mjög víða eru vatns- held stálþil, svo að skipið getur ekki sokkið, þótt gat kæmi á það ein- hvers staðar. I skipinu eru og 2 eimvjelar, 2 skrúfur og 2 gangar af öllum hreyfifærum, svo skipið fer allra sinna ferða, þó annar gangurinn bili. Á N. eru 3 farrými og vórum við Porsteinn í þvi fyrsta, en hin sáum við ekki. Er farþegabústaðurinn þar sem margloptað veitingahús og salirnir svo skrautlegir, að jeg minnist ekki að hafa sjeð meira í borið annars staðar, nerna ef vera skyldi í höllunum i Versölum á Frakk- landi. I sölunum sjest hvergi i sjálfa veggina, því allt er þakið annað- hvort með dýrindis málverkum, speglum, flaujeli eða gullflúri, sem skipt- ist á hvað við annað. Og eptir því eru húsgögnin. Hverjir 2 farþegar

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.