Eimreiðin - 01.05.1897, Blaðsíða 1
Si
Salthólmsferð.
Sendibrjef
herra Jónasar Hallgrímssonar
til
sinna samferðamanna.
Hæstvirtu herrar og meðb ....r!1)
Jeg er nú á ferðinni til Salthólmsa) og verð að rita ferðabók,
sosem eins og við værum allir á inni mildu ferð til Hveneyjarh).
Jeg er nú á ferðinni til Salthólms, og rita þetta eins og þið getið
nærri úti hjá fagurri kvinnu í gulu húsi, eins og þið getið nærri.
Jeg lagði á stað úr Khfn um miðdegi og nú er valla ein stund
til náttmála, enda hef jeg náð 3 eða 4 dauðum dýrum af ættstofni
lindýranna, sem jeg hefi aldrei áður sjeð, Þau sátu föst á kálk-
steini gráum og fornum rjett fyrir utan skemmuna, sem meistari
Lindbergc) prjedikar í. Hvur em eg að jeg líki mjer viðd) Lind-
berg? — Piltar góðir, þetta ætlar að verða undarleg sjóferð. Jeg
er búinn að reykja tvær tóbakspípur og drekka sosem hálfan pela
af frönsku brennivíni, en vindurinn hefur verið á móti mjer, so
jeg er ekki kominn lengra en þetta. Aður en jeg fór á stað, taldi
jeg í sjóðnum, einsog Hindenburge) hefur fyrir rnælt. Þar voru
3rd 68 sk.
Þar að auki í pjáturstokki brauð og smjer fyrir...... » 18
frakkneskt brennivín fyrir........................... » 16
tóbak fyrir.......................................... » 11
tinnur og tundursvampur fyrir..................... » 2
með öllu og öllu 4rd I9sk.
Þetta hafði jeg til ferðarinnar, og er nú farinn að eyða af því öllu
sarnan; þegar jeg kem í náttstað í kvöld, skal jeg reyna til að virða
það og rita ukkur greinilega hvað rnikið hefur eyðzt. Jeg hef ekkert
sjeð merkilegt, nerna hjólskip 'mikið og fagurt, (líklega svenskt),
og mórauðan sauð íslenzkan, sem stappaði niður fætinum þegar
hann sá mig. Jeg hef líka reynt til að geta mjer til, hvað margir
faðmar af eldiviði væru í trjánum á leiðinni, það hafa verið tveir
og þrír faðmar og rnest 6 og hálfur, einsog þið getið nærri. Jeg
') Svo í handritinu.
6