Eimreiðin - 01.05.1897, Síða 62
þeir fæti sínum á Garö, en nauðugir-viljugir sögðu þeir skilið við hann,
þegar tók að líða að prófinu og lífið birti þeirn kröfur sinar með fáurn
orðum í fullri meiningu. Ekki hvað sizt hafa íslenzkir námsmenn í út-
legðinni fjarri heimkynninu og ættingjunum tekið tryggð við hann og
skoðað hann sem athvarf sitt og skjól á þessu fjalllausa fróni. Eeir hafa
því fremur gert það, sem fæstir þeirra hafa að ráði haft nokkur mök
við Dani og kenna því öðrum fremur einstæðingsskaparins. Utangarðs
eiga þeir sjer að jafnaði ekki annað athvarf en »íslendingafjelag« og
•tíFjelag islenzkra stúdenta i Kaupmannahöfn«, er koma saman á mánaðar
fresti. Það er gamall siður á Garði, að þeir, er eptir sitja af Garðbúum,
semja nokkurs konar grafskript yfir þá, er út flytja. fetta hefur við
gengizt í mörg herrans ár, og eru grafskriptirnar letraðar á bækur, sem
Garðbúar varðveita eins og sjáaldur auga sins, komandi kynslóðum til
eptirdæmis og viðvörunar. Er þar stundum allófyrirleitlega að orði
komizt og engin dul dregin á það, er athugavert hefur þótt i dagfari
manna. Jeg er hálfsmeykur um, að ef sumir gamlir Garðbúar, sem
nú eru orðnir gráir fyrir hærum og skipa ýms tignarsæti í þjóðfjelag-
inu, rækju augun i grafskriptina sina, þá mundu þeir hnykla brýrnar og
láta sjer fátt um finnast.
Éótt margir sjeu, eru þó Garðbúar ekki nema litill hluti allra stú-
denta i Kaupmannahöfn. Það úir og grúir af þeim um allan bæinn.
feir, sem ekki finna athvarf á Garði, eiga annars staðar höfði sinu að
að halla. Par eru 3 samkunduhús (Collegia), er veita stúdentum ókeypis
húsnæði, og eru þau reist af 3 prívatmönnum fyrir mörgum herrans
árum siðan. Enn fremur eru þar 2 fjelög, Stúdentafjelagið (Studenter-
foreningen) og Stúdentasamkundan (Studentersamfundet), sem breiða opinn
faðminn á móti öllum þeim, er bera stúdentsnafn. Stúdentafjelagið er
vel efnum búið og á reisulega byggingu í námunda við y>Kóngsins nýja
torg«, miðdepil bæjarins. Meðlimirnir gela fengið þar ódýran miðdegis-
verð og eiga auk þess aðgang að bókasafni, blöðum, fyrirlestrum og
öðrurn skemmtunum og njóta þar ýmsra hlunninda. Stúdentafjelagið
hefur jafnast heldur þótt bera keirn af apturhaldsstefnunni, bæði að því
er snertir almenn mál og andlegar hreyfingar, og sú verður gjarnast
raunin á, að flestir embættismannasynir leita þangað. Kvennstúdentar
era útilokaðir frá að gerast meðlimir þess fjelags. Stúdentasamkundan
gengur aptur á móti í gagnstæða stefnu. Pað er andi Georgs Brandesar
og framsóknarmanna, sem hvílir þar yfir vötnunum. Pangað leita þeir,
er frjálslyndastir eru og framgjarnastir medal stúdenta. Þar er stundum
djarfmannlega til orða tekið gagnvart stjórninni og hennar sinnum, og
ómjúk orð eru þar látin dynja yfir allt það í bókmenntanna heimi, er
hinum ungu oflátungum þykir crðið gamalt og úrelt. En jafnóðum og
þeir finna að berserksgangurinn í þjónustu hinna nýju umturunnarhug-
mynda tekur að renna af þeim, taka þeir sjer neðan í því til að sækja
i sig kjark, til að geysast fram á ný og skekja burtstöngina i hinu and-
lega turnimenti. Að Stúdentasamkundunni eiga kvennstúdentar aðgangs-
rjett til jafns við karlmenn. Pessar lærðu drósir kynoka sjer ekki við,
ef svo ber undir, að drekka tvimennnig við fjelaga sina meðal karl-
mannanna eða kveykja sjer i vindilstúf. Stúdentasamkundan nýtur mun
meiri hylli hjá bæjarbúum heldur en Stúdentafjelagið, og kemur það