Eimreiðin - 01.05.1897, Qupperneq 67
147
þeir borga hann með ávísan á verzlunarhús í Kaupmannahöfn, ef
tollheimtumenn taka það gilt, og því miður eru flestir neyddir til
að gjöra það. Eins og mörgum mun kunnugt, hafa flestir íslenzkir
kaupmenn umboðsmenn i útlöndum, er hjálpa þeim með kaup á
útlendri vöru og sölu á íslenzkri, og hlaupa þessir umboðsmenn
opt undir bagga með kaupmönnum og lána þeim fje, þegar þeim
liggur á; en auðvitað gjöra þeir það ekki nema þeir fái eitthvað
fyrir snúð sinn. Fyrst og fremst taka þeir alloptast 6 °/0 árlega
* vexti af þeim peningum, og því næst 2 °/0 af upphæðinni í um-
boðslaun
Þegar nú um tolla er að ræða, mun optast fara svo, að kaup-
menn verða að fá peninga að láni hjá umboðsmönnum sínum, til
þess að borga þá með; því fyrir það, sem þeir kunna að hafa átt
inni hjá umboðsmönnum sínum um haustið eða veturinn, kaupa
þeir vörur á vorin. Þau lán, sem kaupmenn fá á vorin eða sum-
rin, geta þeir ekki borgað fyr en á haustin, er þeir hafa selt vörur
sínar, og má áætla, að þeir borgi vexti af af peningum þeim, er
þeir fá að láni til þess að borga tolla með, í hjerumbil x/2 ár, því
flestir fá vörur sínar til Islands seint i apríl, eða snemma i maí,
og í stað þess að borga tolla af þeitn strax, gefa þeir út ávísanir
á verzlunarhús í Kaupmannahöfn, sem svo eru borgaðar út við
framvísun; en frá þeim degi, er þær eru borgaðar, verða kaup-
menn þeir, sem ekki eiga nóg fje inni hjá umboðsmönnum sínum,
til þess að borga þessar ávísanir, að gjalda vexti af þeim, auk þeirra
umboðslauna, er umboðsmaðurinn reiknar sjer. Af þessu fyrir-
komulagi leiðir, að undanfarin ár hafa bæði kaupmenn, landsjóður
og landið í heild sinni tapað töluverðu fje, sem runnið hefur
sumpart í vasa umboðsmanna kaupmanna erlendis, en sumpart
hvergi komið niður. Tap það, er kaupmenn verða fyrir, orsakast
af hinum afarháu vöxtum, er þeir verða að gjalda umboðsmönnum
sínum, en tap landsjóðs af vaxtamissi af tollinum, frá þeim tíma,
er tollskyldar vörur komu á land á Islandi, eða útflutningstoll-
skyldar vörur eru fluttar út úr landinu, til þess tíma, er Kaup-
mannahafnar-ávísanirnar eru borgaðar út, sem opt getur dregizt
alllangan tíma sökum samgönguskorts; og þó i rauninni miklu
lengur, því ríkissjóðurinn, sem allar slíkar ávísanir eru borgaðar
inn í, geldur enga vexti af því, er landsjóður á inni hjá honum.
Landsmenn tapa einnig fje við það, að meira verður að borga
fyrir hinar tollskyldu vörur, en þeir þyrftu, ef vextir af tollinum
10*