Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1912, Síða 9

Eimreiðin - 01.05.1912, Síða 9
85 sagði við Bolla: »Eigi muntu bera giftu til, at gera svá, at öllum líki vel.« Pað var viturlega mælt; enda var Guðrúti vel viti borin. En Guðrúnu var ekki rótt þennan dag, sem Kjartan var veginn. Hún spann garn í ákafa og gerði mikið að. Hún fagnaði leikslokunum, þegar Bolli kom heim um nón- bilið, og þakkaði honum verkið. En hverju fagnaði hún? Og hvað þakkaði hún? Hún þakkaði Bolla fyrir það, að hann lét að bæn hennar; »þykkir mér nú þat vitat, at þú vilt ekki gera móti skapi mínu«. Pakklæti hennar snerist þá um þennan möndul. En fögnuður hennar snerist um annan ás. Hún fagnaði því — »sem mér þykkir mest vert, at Hrefna mun ekki ganga hlæj- andi at sænginni í kveld«. Þar sprakk blaðran. Ábrýðin logaði í hjarta hennar. Hún þoldi ekki, að Hrefna nyti Kjartans — mannsins, sem hún sjálf elskaði, þrátt fyrir alt og þrátt fyrir alt, sem borið hafði á milli. Petta, að ráða banaráð elskhuga sínuml Vér skiljum það varla, sem lifum núna, á öld kaffidrykkju og taugaveiklunar. Okkur ofbýður grimd þeirrar konu, sem ræður þeim ráðum. »En gætum þess, að eftir anda aldar sinnar hvern skal meta.« Pessa konu og aðra eins má ekki mæla með spannarkvarða þeirrar kurteisi, sem kend er á hæverskum kvennaskóla, eða á sætabrauðsdansleik. Pá vóru hefndir hugstæðar hverjum manni og konu, sem þóttist verða undir í viðskiftum sínum við náunga sinn. Flestir menn og konur töldu það drengskapar skyldu sína, að koma hefndum fram, í fornöld. Fólkið á þeim dögum hefndi sín, þegar því mislíkaði stórum, og lét hefndirnar koma fram í blóðrás, sára- fari og vígaferlum.— Nú drekka mennirnir kaffi og brennivín, þeg- ar þeim er skapþungt og tyggja tóbak í ákafa. Munurinn er mikill. Annars er því líkt, sem einhver óhamingja hafi glapið sýn þessum þremenningum: Kjartani, Guðrúnu, og Bolla. Pau eru öll drengskaparmenn að eðlisfari, eftir því sem sagan segir frá þeim. Kjartan var svo vinsæll í hirð Ólafs konungs, að hann átti sér alls engan öfundarmann. Par sést drengskapur mannsitis, því að

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.