Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1912, Síða 44

Eimreiðin - 01.05.1912, Síða 44
120 Úr norðurljóssins leifturheima flaum með ljósi augna töfraneista eg dró, og fimbulrödd frá fossa reginstraum varð fangi minn, er eyra þungt hún hló. Eg mána og stjörnur bað um blikljós sitt, og blossa þess í hjarta mér ég fann. — Pá leiddi' eg alt það afl í bandið mitt, og undravald í hverri taug þess brann. Ég gekk í hóla og björgin blá og köld og brúði álfa heitan koss ég gaf. Að launum fékk ég rúnum ristan skjöld úr rauðagulli á band mitt, er ég svaf. Með dvergum lék ég dátt í steinum grám, þeir demantshringum skreyttu bandið mitt. Ég beygði kné mín blájöklinum hám, í bandið flétti ’ann töfravaldið sitt. Ég gekk um heiðar, hraun og kletta og fjöll, og hitti drauga og útileguþjóð og vættir dalsins, vofur hamratröll, þeim vilta lýð ég flutti bernskuóð, Pá hýrnaði yfir hrottum myrkur-kvelds — þeir hreyfðu loppum bandsins þáttum að, en strenginn flugu um neistar alda elds frá óralöndum mér að hjartastað. — Ég gaf því bandi alt, sem augað leit, og um mig dreymdi í lofti, jörð og sjó, unz ekkert járn þann undrastreng minn beit, og enginn slítur nema dauðans kló. — í ókunn lönd með töfrateygju úr sveit það teygðist meir, þess fjær sem henni eg bjó, En stöðugt heim að æskuára reit það í mig togar sterku valdi þó. * * *

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.