Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1912, Page 11

Eimreiðin - 01.05.1912, Page 11
87 sem hann kynni betur að sjá en þau. Annars hefir þetta hent marga konu, að giftast manni, sem hún unni ekki. Og ég hygg, að þær skilji ekki sjálfar, hversvegna þær breyta á þann hátt. Stundum ganga vel gefnar konur og vel gerðar að eiga illa gefna menn og illa gerða. þessháttar breytni kvenna verður varla skýrð á rökfræðislegan hátt. Útlend kona hefir kveðið kvæði um Kjartan og Guðrúnu, og man ég eitt orðalag hennar um kynsystur sína. Hún segir á þá leið, að ást, sem var hungraðri en Helja, hafi valdið dauða Kjart- ans Ólafssonar. fetta er stórum vel að orði komist. Ást, sem er hungraðri en Helja! — Er hún nokkuð annað en vitstola ábrýði? — þar sem Guðrún á í hlut. Hefnigirni og ábrýði Guðrúnar vóru tvær straumkvíslar, sem runnu saman ( eina á, flúðótta og strengjamikla. Þessi meginelfur myndaði fossfall, þegar tilfinningar Guðrúnar æstust sem mest, við skapraunirnar, sem Kjartan hafði í frammi. Og hún hratt Kjartani í þennan foss. Hún hló kaldan hlátur á hamrinum sínum. En Bolli sá í hug hennar. Hann gat ekki orða bundist og lét í veðri vaka, að henni mundi minna hafa brugðið, ef þeir, bræður hennar og bóndi, hefðu legið dauðir á vígvellinum, en Kjartan hefði átt frá tíðind- um að segja. Pað rættist á Kjartani og Guðrúnu, að sitt er hvað: gæfa og gjörfileiki. Pau hafa verið, ef til vill, fríðust sýnum og bezt að sér ger allra íslenzkra manna í fornöld. Sagan lýsir þeim þannig að minsta kosti. En þó er sagan þeirra harmsaga, og kalla má, að blóði rigni yfir þau bæði af himni sögunnar. Segja má, að þau hafi verið smiðir gæfu sinnar og ógæfu, og hafi mátt sjálfum sér um kenna. En er það nú víst? Ráðum vér við sjálfa okkur æfinlega, vesalings mannkindurnar? Og hver veit það fyrirfram, hvað drífa muni á dagana, síðar? Hver vill verða til þess, að kasta fyrsta steininum á þá menn og konur, sem sólmyrkvi hamingjunnar verpur á dimmasta drunga? Sá steinn mætti verða mosavaxinn.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.