Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1912, Page 17

Eimreiðin - 01.05.1912, Page 17
93 endurminningu skálda og fræðimanna, sem þessar konur. Harm- saga Sigurðar og Brynhildar lifir enn á vörum alþýðu ýmissa landa í ýmsum myndum. Pau ganga enn þá mann frá manni eft- ir þúsundir ára. Mér er sagt, að Færeyingar eigi mörg kvæði í vitum sínum um Sigurð og þykja þau stórum vel kveðin. Forn- skáldin okkar ortu mörg kvæði um Sigurð og Brynhildi og Guð- rúnu, og eru þau svo vel kveðin og djúpúðig, að málsnild og orðhepni hafa hvergi rist dýpra í norrænum bókmentum. En torskildar eru konur þessar, þeim mönnum, sem nú lifa og skoða þær í gegnum gleraugu vorra tíma. — Guðrún er enn þá undarlegri en Brynhildur. Hún elskar Sigurð bónda sinn og lætur enga ábrýði í ljós, þótt hún viti vel, að hann ann Bryn- hildi. — Hún er fyrirtaks kona í háttum, meðan hún hefir Sigurð, enda átti hún hann viljug. En svo er hún grimm í sambúðinni við Atla, að þá sker hún sonu sína á háls og matreiðir þá handa honum. En þá fer henni líkt og Signýju Völsungsdóttur: Hún vill ekki lifa. Brynhildur og Guðrún eiga sammerkt á þann hátt, að til- finningar beggja eru eins og æstar öldur, sem brotna á skerjum með miklum gný. Hugarfar sumra manna er þvílíkt stundum, sem hafrót í stór- viðri, einkum kvenna. Sjómenn hafa sagt mér, þeir sem verið hafa úti á rúmsjó í ofviðri, að stundum verði skip þeirra fyrir svokölluðum breksjóum. Peim er kynlega háttað. Peir eru á þann hátt, sem öldur eru, en þó miklu stærri og veigameiri, svo að þeir taka yfir hvert skip og brotna uppi í reiða skipsins. Enginn veit hvernig þeir mynd- ast. En getgátur eru um orsök þeirra. Haldið er, að þeir séu samruni ýmissa afla, storms og strauma, á þann hátt, að stormur og samanskollnir straumar hefji þá upp úr hyldýpinu og magni þá risavexti og kyngikrafti. Pessir breksjóar valda oft skipsköðum og manntjóni. Mér koma breksjóarnir í hug, þegar ég hugsa um kvenskör- unga fornaldarinnar, sem unnu voðaverkin. Aðalorsök breksjóanna er stormurinn. Og aðalorsök ódáðaverka kvennanna, sem ég hefi nú haft að umræðuefni, er brennandi ást, sem orðið hefir fyrir svikum og vélráðum, og snúist í ábrýði eða þá hatur. 7

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.