Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1912, Page 65

Eimreiðin - 01.05.1912, Page 65
eins og reyndar yfir höfuð að tala öll dýr, sem ekki eru húsdýr mannsins, og sem hægt er að ráða við. Hvolpurinn þurfti að íhuga og rannsaka svo marga flókna hluti. fað var nú fyrst og fremst að átta sig á jarðveginum, hvar sé hægt að róta honum upp með löppunum og snuðra upp fylgsni ýmsra leiðra kvikinda, eins og orma og ánamaðka, músa, moldvarpna og engisprettna. — í*að var nokkurnveginn auðgjört, að komast að þeirri niðurstöðu, að loftið og himininn eru hund- inum alveg óviðkomandi, því þar er ekkert ætilegt. Pá var að gefa gaum grasinu, sem gott er að liggja í, og jurtum og trjám, sem gefa gott skjól. Pá var að reikna út hæð þeirra hluta, sem þurfti að stökkva ofan af, og til þess gafst engin önnur leiðbein- ing, en sársaukinn einn, sem fylgdi því, að detta og meiða sig.— Það varð fljótlega komist að niðurstöðu um, að það er alveg á- rangurslaust, að vera að elta fuglinn fljúgandi, og ekki til neins, að vera að eltast við kött, sem stekkur upp í eik. — Pað var þægileg uppgötvun, að rigningin nær ekki inn í húsin, en aftur óþægileg sú reynsla, að vatnið er kalt og lífshættulegt til íbúðar, og að eldurinn er brennandi og ægilegur, en aftur nógu þægi- legur í vissri fjarlægð. Pá varð að kynnast nautunum og hestun- um og ýmsum dýrum, ýmist meinlausum eða geigvænlegum. Sérhver hundur á ekki einungis að láta sér þykja vænt um húsbóndann, heldur líka konu hans og börn, og þetta er vana- lega auðvelt, því hundi, sem elskar húsbónda sinn meira en alt annað í heiminum, honum verður ósjálfrátt vel við alla, sem bera svipaða hlýju til húsbóndans. Og þó krakkaóvitarnir klípi í róf- una á seppa eða togi harkanalega í eyrun á honum með glensi og gamni, þá verður hann að taka því skynsamlega og aðeins tnáske sýna tennurnar, en ekki meira. fað er örðugra fyrir hund, að taka því með jafnaðargeði, þegar vinnukonan sparkar í hann og vill ekki lofa honum að liggja í hlýjunni við eldavélina. En látum svo vera; það er ekki holt að reita hana til reiði, því mörgum góðum bita hefir hún vikið að svöngum hundi. — Pað er leyfilegt að éta allar matarleifar og naga öll bein, sem kastað er í sorpdallinn — en vei þeim hutidi, sem stekkur upp á hvítan dúkinn og hrifsar steikarbita. Og etigin afsökun er það, þó þetta

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.