Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1916, Page 21

Eimreiðin - 01.01.1916, Page 21
21 perlur, dýrindis gimsteinar. Og þessar perlur á ég, því þetta land, sem þú stendur á, og svo langt sem augað eygir, er mín eign. Skilurðu það, mín eign, mitt ríki.< Svo hvarf hann inn í skóginn, jafn-hljóðlega og hann kom. Þetta atvik kom fyrir mig seinni hluta júlímánaðar, sumarið sem ég dvaldi á Ási. Eg gat ekki gleymt karlinum, gamalmenninu einmana, sem reikaði fram og aftur um skóginn, til þess að telja daggardrop- ana á laufum trjánna. Eitthvað var það í fari hans, sem gaf til kynna, að hann ætti sér einhverja sögu, einhverja einkennilega raunasögu. Bóndinn á Ási sagði mér sögu hans, skömmu síðar, þegar ég hafði fært þetta í tal við hann. fórður hét hann og var einbirni. Faðir hans var ríkur. Hann átti Ás og allan skóginn hér umhverns. Ás hafði lengi verið í sömu ættinni. Mann fram af manni búnaðist öllum hér á Ási. Pangað til Björn, faðir Pórðar, kom til sögunnar. Hann drakk mikið. Vanrækti að sýsla um búið. Loks var As seldur upp í skuldirnar og skógurinn með. Björn dó um sama leyti, í eymd og vanhirðu. Pórður var 18 ára, þegar þetta gerðist. Hann hafði verið léttlyndið og kætin sjálf; máske viðkvæm- ur um of. Hún hét Ásta, stúlkan hans. Pegar Ás var farinn, yfirgaf hún hann, bað hann að gleyma sér, fyrirgefa sér. Hún hefði ekki vitað hvað ást var, þegar hún lofaðist Pórði. Hún elskaði hann ekki. Þá varð hann svona, einrænn og undarlegur. Eg var að hugsa um þetta, vonbrigði Pórðar og hvers hann hefði farið á mis í lífinu, um þessa sorgarsögu, sem hafði ger- breytt lífi hans, þegar Ásbóndinn mælti: sþað hefir líklega átt að fara svona. Eg er búinn að gera mikið á Ási, miklu meira en Pórð nokkru sinni hefir dreymt um.« Pað var sigurhreimur í rödditini. Mér varð litið upp. Ég horfði á hann. En hann horfði á akra og hús, skóg og engjar, og sá, að það, sem hann hafði gert, var »harla gott«.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.