Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1916, Blaðsíða 67

Eimreiðin - 01.01.1916, Blaðsíða 67
67 hvert hefti), og ná yfir árin 1815—1827 og byijun ársins 1828. Segir þar frá mörgu, er menn hafa gaman af að fræðast um, ekki sízt þar sem menn kannast við flesta hinna merkari manna, sem frá er sagt, eða þá að minsta kosti við niðja þeirra, syni og sonarsyni. Þar má og fá allmikla fræðslu um ættartölur núlifandi manna og líf forfeðra þeirra. Gerðist og margt sögulegt á þessum árum, t. d. Kambsrán, Natansmál, fjárdrápsmálið í Húnaþingi o. fl. Væri ósk- andi, að ritið yrði svo mikið keypt, að útgefandinn sæi sér fært að halda útgáfunni áfram; því fróðleg bók verður þessi annáll, þegar hann er allur út kominn, þó annálsformið geri þráðinn í frásögninni nokkuð slitróttan. V. G. STEPHAN G. STEPHANSSON: KOLBEINSLAG. Gamanríma. Winnipeg 1914. Efnið í rímu þessari er tekið úr sögunni »Kolbeinn og Kölski« í í’jóðsögum Jóns Árnasonar II, 18—19, þar sem Kolbeinn kveðst á við Kölska og sigrar hann. En sögnunum um Kolbein er þó vikið við á ýmsan hátt og rlman gerð að heimsádeilukvæði. Eru þar, sem vænta mátti, margar snjallar hendingar og bitur heimsádeiluskeyti, en ríman þó yfirleitt svo myrk, að flestum mundi ofætlun að skilja hana, ef ekki fylgdu skýringar á efninu aftan við. Og þó er margt óljóst eftir sem áður, og er því ríman enganveginn til þess löguð, að ná al- þýðuhylli, enda hefir Klettafjallaskáldinu oft betur tekist. V. G. GUÐMUNDUR FRIÐJÓNSSON: HAUSTLÖNG. 120 hring- hendur. Rvík 1915. í þessu 30 bls. kveri eru 5 kvæði og er hið 1. um helsingja, 2. um lóuna, 3. um svaninn, 4. um rjúpuna, 5. um veður og vind og máske eitthvað fleira, og 6. um Norðurálfuófriðinn mikla. Satt er það, sem segir í formálanum, að hringhendan sé vinsæll háttur meðal almennings að fornu fari og ætti enn þá að njóta vin- sælda. í’að gerir hún óefað líka. En ekki er það heiglum hent, að fara svo vel með hana í löngu kvæði, að hún njóti sín. Og heldur ekki hefir höf. tekist það hér, og viljum vér þó sízt telja hann meðal heiglanna En hann hefir hér reist sér hurðarás um öxl, og því miklu minna í þessi kvæði hans varið, en vant er að vera. Hefir hann og stundum orðið að grípa til rangra eða afbakaðra orðmynda vegna hins dýra ríms (t. d. heið f. heiði (bls. 7), þögl f. þögul (11, 13, 26) og jafna f. jafnan (14) o. s. frv.) og á maður ekki slíku að venjast frá hans hendi. Rímgallar eru að vísu fáir, en þó til (t. d. »valdar« rímað á móti »dal« í aðalhending (12) og áherzla á »að« í sólmánaðar (19)). En þó rímið sé yfirleitt bæði lipurt og slétt, og margar vísur dáindis snjallar, þá dylst manni ekki, að hinn dýri háttur hefir lagt þau bönd á höfundinn, að skáldgáfa hans hefir ekki notið sín til fulls, — og kvæðin því ekki orðið eins 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.