Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1916, Blaðsíða 71

Eimreiðin - 01.01.1916, Blaðsíða 71
71 ■svo prýðileg, að mann furðar á slíkri fullkomnun hjá byrjanda í þess- ari skáldskapargrein. }Jar er alt svo slétt, heflað og fágað, að hvergi sér blett né hrukku. Og lýsingarnar eru rammíslenzkar og svo yndis- þýðar, að maður vaggar sér í nautninni við að lesa þær víða hvar. Og málið er svo létt og lipurt, svo einfalt og tilgerðarlaust, en þó svo hreint og fagurt, að það minnir á »Grasaferðina« hans Jónasar Hall- grímssonar. Vér höfum tvílesið allar sögurnar og verið að skygnast eftir einhveijum göllum; en svo illa hefir oss fiskast, að varla getur heitið, að vér höfum orðið varir. Þó mundum vér heldur kjósa »við og við« eða »öðruhvoru«, en hið dönskuskotna »af og tilt á bls. 11, 82 og 101. Ekki álítum vér heldur eins náttúrlegt að segja *fagur maður« (bls. io), eins og »fríður« eða sfallegur* maður. Orðið »fag- ur« á nú einhvernveginn betur við blessað kvennfólkið, en okkur karl- mennina. Þá finst oss og »nú er liðið á aftaninn« (bls. 11) ekki eins náttúrlegt, eins og »nú er liðið á kvöldið«. Orðið »aftann« á í nútíðarmáli varla heima nema í ljóðum; í óbundnu máli vart nema í nokkrum samsettum orðum. »Já, smátt er nú til tínt,« muntu segja, lesandi góður, »og ekki er nú margt að, ef þetta eru helztu gallarnir á málinu.« Satt segir þú það; en vér höfum nú ekki fundið neitt annað, og þó leitað all- vandlega. Og eins er prófarkalesturinn óvanalega fullkominn. Af stafsetningar- eða prentvillum höfum vér ekki fundið nema þijár: »laufskykkja« (bls. 44), »findi« (98) og »hafi« (101) f. »laufskikkja«, »fyndi« og »hafði«. Bezt þykir oss síðasta sagan, »Tveir heimar«. Hún er reglulegur gimsteinn og með beztu smásögum, sem skrifaðar hafa verið á ís- lenzku. Vér tökum upp lítið sýnishorn úr þeim kaflanum, þar sem verið er að lýsa áhrifunum af hljómleik frú Alfheiðar kaupmanns- konu: »Frú Álfheiður vissi lítið um alla þá tilheyrendur, sem hún hafði. Hún lék af löngun og þörf. Ekki var hugur hennar ávalt staddur á Eyrinni þær stundir. Þó átti hún þar mikla fegurð. Ungar minn- ingar brugðu yfir sig svanaham tfmanna og báru hana á mjallhreinu baki fram og aftur yfir og um nýja bústaðinn hennar. En hún gætti þess aldrei, hve margir staðnæmdust og hlustuðu úti fyrir glugganum. Þegar hún mætti fiskikerlingu, sem brosti til hennar, vissi hún ekki, að brosið var þökk fyrir söng og leik; en hún brosti aftur til þeirra, þvf hún var ung og blíðlynd og hafði ekki reynt hræsni eða ilt umtal. Hún tók heldur ekkert eftir því, hve langt telpur bæjarins gengu úr vegi fyrir henni, eða hve aðdáunin var mikil í augum þeirra. Hið eina, sem frú Álfheiður vissi um áhrif listar sinnar, var það, að litli drengarinn hans Þórðar trésmiðs hafði farið að gráta, þegar systir hans kom að sækja hann út að húsinu þeirra Sveins. Hann hafði staðið þar lengi, eins og bundinn við grindurnar framan við húsið. Frúin leit út um gluggann: »Hvers vegna grætur drengurinn svona sárt?« Systir hans leit upp hálf-ráðalaus: »Hann vill ekki koma heim, •af því honum þykir svo gaman að heyra yður spila.« Frú Alfheiður stóð hjá litlu systkinunum. Hún brosti og strauk
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.