Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1916, Blaðsíða 32

Eimreiðin - 01.01.1916, Blaðsíða 32
32 hreinni. Ég skoðaði höfuðið og segi, hvort það viti ekki, að það sé stálhúfa af geitum 1 höfði bamsins. — Jú, það vissu allir, að hún hefði þær, því það hefðu öll bömin frá Hlein. »f’ví er ekki búið . að ná þeim úr henni?« segi ég. Helga vinnukona átti að gera það. Móðir mín vildi ekki gera það, af því hún fór með allan mat sjálf. Helga fer að hlæja og segir, að það sé naumast, ég fái »huppleg- heitin«, er ég komi heim, og bætir við, að svona fín stúlka, eins og hún Anna sé, fari víst aldrei að þrífa geitur úr niðursetu. Þá segir mamma: »Altaf kallið þið hana fína, og þó gengur hún oftast í sömu vinnu og þið, nema frekar sé, því hún þvær líka gólfin.« Ég tók telpuna að mér, þótt á sveit væri, en erfitt gekk að ná úr höiði hennar. Nær því eitt ár var ég að því, og hæddist Helga að mér fyrir alt það basl. En þegar telpan var 9 ára gömul, hafði hún hár ofan á herðar, og var ekki trútt um, að Helga öfundaði hana. ÓKNYTTAMENN OG FLÆKINGAR, GRASAFERÐIR O. FL. Eitt var það í æsku minni, sem mér fanst mikil brögð að, og það voru þessi þjófnaðarmál, sem fyrir komu á hverju ári. Annað- hvort hefir fólk verið stelvísara þá, eða að sýslumenn og almenningur hafa haft næmari tilfinningu fyrir réttlæti en nú. Því nú reka menn upp stór augu, ef það heyrist, að einhver sé kominn í fangahúsið. Og vanalega standa þau tóm út um landið, af hverju sem það er. Ég man einkum eftir einum hjónum, sem höfðu stolið einum sauð, og voru dæmd til hýðingar, hann 25 og hún 20 vandarhögg. Arni sál. Thorsteinsson í Krossnesi var þá sýslumaður, og sagður harður við alla þjófa. Ég var svo ung, að ég aðeins man eftir því. Öll þesskonar athöfn var framin á þingstaðnum í Grundarfirði, úti í pakkhúsi, og mátti þar enginn nærri koma, nema sýslumaður, böð- ullinn og 2 vottar, sem ávalt voru faðir minn og Jón bróðir hans. Eitt sinn báðu bræður mínir um, að fá að vera við slíka athöfn. En þeir fengu fljótt nei hjá Árna sýslumanni. Hann hafði sagt, að hér væri ekkert barnagaman á ferðum. Það eitt man ég, að fegnir urðu þeir eftir á, að sýslumaður hefði neitað þeim um beiðnina, er þeir sáu hjón þessi koma út grátandi og mjög aumleg. Ég man, að þau komu inn til okkar bæði grátbólgin, og að mamma gaf þeim stóra kaffibolla af sætu kaffi og brauð með. Og ég man enn, hvað hún sagði við þau, er þau þökkuðu fyrir kaffið. Hún sagði: »Ég vona, að þið látið ekki svo vondar hugsanir ráða yfir ykkur aftur. Guð hjálpi ykkur til þess.« I’au grétu og þökkuðu henni fyrir, og báðu guð að launa henni alt gott. Og þau stálu aldrei framar. Margt kom annað fyrir hjá ýmsum, og stundum var það smátt, er stolið var; en altaf dundu vandarhöggin. Nú kemur til sögunnar Sölvi Helgason, er margir hafa heyrt nefndan sem flakkara, og um passann góða. Árni sýslumaður sagðist engum trúa jafn-vel fyrir honum og föður mínum. í það sinn varð honum það að sök, að hann hatði skrifað sér þennan alkunna falska passa, og rambaði með hann um landið. Honum var ekki um pabba
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.