Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1916, Page 34

Eimreiðin - 01.01.1916, Page 34
34 Eyrarsveit þá verstu eg veit á Vesturlöndum, full er hún af fúlum öndum. Og var nú hreykinn af að geta ort um óvini sína. Þá svarar pabbi: Eyrsveitingar eru víst en friðland hjá þeim finna sízt iðjusamir flestir; flökkusnatar verstir. Varð Sölvi þá hljóður alt kvöldið, anga-greyið. Oft gaf Sölvi okkur myndir af kóngum og spekingum, sem hann málaði. Hann dró og upp allskonar uppdrætti, sem hann sagði, að væru »skatterings-munstur« og »bróderingar«. En faðir minn sagði um þessa uppdrætti, að hversu nákvæmlega sem leitað væri með log- andi ljósi, þá væri ómögulegt, að fá nokkurn snefil af viti úr þeim. Ég hafði þá ekkert vit á þesskonar, en heyrði, að móðir mín sagði, að þeir væru ólíkir náttúrunni; því engin blóm væru þannig. En ég man, að mér þótti þau falleg. Sölvi var allajafna vel klæddur, og hélt sig að heldri manna sið i búningi. Sá ég hann aldrei öðruvísi en í dökkum klæðisfötum, með dökkgræna klæðishúfu á höfði, er hann hafði sjálfur sniðið eftir sín- um smekk, að því er hann sjálfur sagði. Man ég enn vel, hvernig húfan var. Hún var lág að aftan, en fór hækkandi fram eftír höfð- inu, og var allrahæst að framan. Lítið der var á henni, og í báðum vöngum lét hann hanga skúfa, úr stórum gulum glertölum, ex einhver hafði gefið honum. Hann vildi ekki »svína sig út«, sagði hann oft. Ekki man ég, hvaða verk það var, er hann átti eitt sinn að vinna með piltunum, föður mínum og drengjunum, bræðrum mínum. Hann fór með þeim, en kom brátt heim aftur, og sagðist vera óvanur saur- verkum, eða að ata út föt sín. Ég man, að móðir mín sagði þá, að hún skyldi ljá honum önnur föt á meðan. En ekki sagðist hann klæðast í annarra manna föt, svo mikill maður sem hann væri. Verkið mun hafa verið, að setja 2 báta upp í naust; en annar bát- urinn var nýbræddur, og var ekki orðinn vel þurr. Sölvi var vel vaxinn, miðmjór og herðabreiður, og hafði oftast báðar hendurnar á mjöðmum sér, tíl þess að sýna hinn undraverða vöxt sinn. Hann mátti heita laglegur maður, hátt og breitt enni, nefið beint, og hafið ögn upp að framan, augun blá, og ekki smá, hvelfdar brýr, og hakan nokkuð löng, og toginleitur. Skegg ýmist topp á höku, eða þá fult vangaskegg. Sundurgerðamaður var hann í meira lagi, er sjá mátti á vasaklútnum, sem ætíð hékk úr buxna- vasa hans ofan á mitt læri. f’að gerðu og fleiri, og þótti »mont«. Hann vildi einnig hafa hvítt hálslln, og gerði það, er hann gat. Ég man, að daginn, sem Sölvi átti að fara, — þá fyrst, en fyr ekki, — sást, að hann var ekki sneyddur allri tilfinningu. Éví stúlk- urnar bentu mér á hann frammi í dyrunum og sögðu: »Nei, hann Sölvi hefir grátið!« Þær sáu það á augum hans. Alla kvaddi hann með kossi og handabandi, og var mjög dapur. Kendu þá allir í brjósti um hann. Síðan fór hann út í Krossnes, og þaðan með sýslumanni út í Olafsvík, og þar var hann hýddur tvennum 27

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.