Eimreiðin - 01.10.1919, Page 23
eimiíeiðin] KÖTLUGOSIÐ 1918 215
Það, sem eg legg til grundvallar fyrir þessum útreikn-
ingum, er í sem fæstum orðum allar þær prentaðar og
munnlegar upplýsingar, sem eg hefi fengið um öskufall
hvaðanæfa af landinu og sá skilningur, sem mér hefir
fundist best viðeigandi á hverjum stað til samanburðar
heildinni. Hin helstu pláss, sem eg hefi fengið meiri eða
minni uppljrsingar frá viðvíkjandi öskunni, eru eftirfylgj-
andi staðir: Vík í Mýrdal 20 km. frá Kötlu, Skaftártunga
251), Þykkvabæjarklaustur 35, Eyjafjöll 38, Rangárvellir
75, Fellsmúli 70, Vestmannaeyjar 70, Ölfusárbrú 112,
Reykjavík 165, Mýrasýsla 195, Breiðifjörður 280, Rauði-
sandur 315, ísafjörður 345, Langadalsströnd 315, Skaga-
fjörður 240, Akureyri 235, viða úr Þingeyjarsýslu 230—
345, Héraði 300, Seyðisfirði 310, Hornafirði 200 og Ör-
æfum 115 km. o. fl. Fiá sumum þessum stöðum má fá
allljósa hugmynd um öskumagnið og með varlegum sam-
anburði má svo fá nokkurnveginn samræmi í heildina.
í sambandi við þessar upplýsingar, sem eg hefi fengið
úr ýmsum áttum, leyfi eg mér að geta nokkurra athug-
ana, sem gerðar voru hér í Reykjavík viðvíkjandi ösku-
fallinu.
Hinn 13. og 14. okt. voru gerðar 3 tilraunir til að
mæla öskumagnið. Gísli Guðmundsson gerlafræðingur
gerði eina suður á Melum, lét öskuna, sem féll á sunnu-
daginn og mánudagsnóttina, falla á sléttan flöt. Útkoman
reyndist 44 grömm á 1 ferm. eða 44 tonn á 1 ferkm.
Aðra tilraunina gerði Bjarni Sæmundsson skólakennari
heima við hús sitt; mældist honum askan 35 gr. á 1
ferm. eða 35 tonn á 1 ferkm. Sá er þetta ritar gerði hina
þriðju á sama tíma, einnig heima hjá sér. Hans athugun
gaf 38 gr. á ferm. eða 38 tonn á 1 ferkm. Eg geri ráð
fyrir að Gísla athugun hafi verið áreiðanlegust, þar sem
hann var fjarlægur öllum húsum. Öskufallið hefir þá í
það sinn að minsta kosti orðið 40 tonn að meðaltali yfir
þessu héraði á hvern ferkm. Yfir Reykjavíkurbæ, sem
telst um 1.5 km.2 að flatarmáli, svarar það til 60 tonna.
1; Tölurnar eru kilómetrar lrá Kötlu.