Vísir - 08.12.1959, Page 7
JÓLABLAÐ VÍSIS
7
Á meðan á Kóreustyrjöldinni
stóð kom ungur, gamansamur
stúdent frá Cambridgeháskóla
inn í marmaraskreýtta salinn,
sem þekktur er sem „The
Room“ — herbergið — og er
aðalmiðstöð Lloyds vátrygg-
ingafélagsins í Lundúnum, og
sagði: „Ég ætla að líftryggja
Mao Tse Tung.“
Hinum unga stúdent var allra
vinsamlegast bent á það, að
hann þyrfti að færa sönnur á,
að honum væri það verulegt
hagsmunamál að herra Mao
héldi lífi. Fyrr væri ekki hægt
að taka ósk hans til greina.
Svo er bjartsýni Lloydsmanna
fyrir að þakka, að þeir eru
reiðubúnir að hætta á svo að
segja hvað sem er, hvort sem
um er að ræða að tryggja gegn
ránum eða slysum, dauða eða
náttúruhamförum. — Þeir eru
jafnvel fúsir til að tryggja
kroppinn á einhverri gleðikon-
unni. Stúdentinn okkar frá
Cambridge fékk þó það svar, að
Lloyds hefði engan áhuga fyrir
því að gefa út vátryggingar-
skírteini, sem væri eins konar
írskt happdrætti.
Lloyds er notað
í ýmsu skyni.
Lloydsmönnum er meinilla
við að starfsemi 'þeirra sé gerð
að tilefni blaðafregna og sér-
staklega af því, að blaðamenn
hafa tilhneigingu til að líkja
Sonja Henie, skautamærin
fræga, tryggði fæturna á sér
í'yrir of fjár.
henni við fjárhættuspil, Aug-
lýsinga- og áróðursfyrirtæki
rejma oft að halda á loft hróðri
misheppnaðra listamanna, sem
eru að syngja sitt síðasta og
nota oft í því skyni hið mikla
álit, sem Lloyds nýtur. Þannig
sló áróðursmaður einn mikið
um sig, er hann gerði það kunn-
ugt, að viðskiptavinur hans
einn hefði tryggt mállýzkufram-
burð sinn hjá Lloyds fyrir 1
milljón dollara. Maðurinn hafði
amerískan suðurríkjaframburð
og átti þetta að sýna hvílíkur
eindæma listamaður væri hér á
ferðinni. Af þessum og svipuð-
um ástæðum gæta Lloydsmenn
þess vel, að litið sé á trygginga-
samninga þeirra sem einkamál.
Það er ekki langt síðan að
skozkur vátryggingarumboðs-
maður, Primrose að nafni, tók
að sér óvanalega tryggingu fyr-
ir golfleikara. Sá siður ríkir, að
golfleikari gefi öllum viðstödd-
um hressingardrykk, ef hann
hittir í holu í fyrsta höggi. Út-
gjöldin, sem eru samfara þess-
um veitingum, skyggja oft á
ánægjuna af íþróttaafrekinu hjá
hinum samhaldssömu Skotum.
Primrose samdi því við Lloyds
um tryggingarkerfi, þar sem
golfleikurum er gefinri kostur á
að tryggja sig gegn slíkum út-
gjöldum. Dag nokkurn komust
blaðamenn á snoðir um þetta
og meira að segja komst nafn
Primrose á milli tannanna á
þeim. Hinn konunglegi golf-
klúbbur, sem kenndur er við
St. Andrews, taldi, að þessi
tryggingarháttur spillti leik-
reglunum og þar sem Lloyds
fannst heiðri sínum misboðið,
er þetta fréttist, var þessum
tryggingum hætt. Verða Skotar
nú að greiða veizluhöldin úr
eigin vasa.
Trygging
gegn ofdrykkjudauða.
Það hefur margt á dagana
drifið hjá Lloyds síðan það var
stofnað fyrir rúmum 260 ár-
um, þegar fjármálamenn fóru
að venja komur sínar í kaffi-
húsið hans Edwards Lloyds og
buðu hverjum sem hafa vildi
að tryggja svo að segja hvað
sem var — jafnvel lif manns
gegn dauða af ofdrykkju. í dag
á Lloyds engan sinn líka og má
segja, að félagið sé tákn hins
kapítaliska skipulags. Nærri
270 ára ferill, varðaður snilli
fjármálamannanna og gulli
hinna auðugu liggur að baki vá-
tryggingarkerfis þess, sem
kennt er við Lloyds í London.
Það má í rauninni segja, að
Lloyds sé frjálst og óháð heims-
veldi. Umboðsmenn Lloyds eru
dreifðir um allar jarðir, en
tengdir órjúfandi böndum
skipulagsins, hvort sem þeir eru
á íslandi eða í Zansibar, Amst-
erdam eða í Zululandi.
Fátt er það á þessari jörð,
sem Lloyds er óviðkomandi.
Það getur alveg eins verið te-
drykkja í einhverju garðshorni
í London eins og náttúruham-
farir í Burma, hvort tveggja
kann að vera skráð á vátrygg-
ingarskírteini hjá Lloyds.
Durante
tryggði nefið á sér.
Menn frá öllum löndum
heims koma í „The Room“ í
Leadenhallgötu nr. 12 í London
til að tryggja sig gegn styrj-
öldum, eða gegn því að konan
þeirra fæði þríbura eða gegn
því að rigni á skemmtisam-
komu. Lloyds hefur gefið út
vátryggingarskírteini um flest
milli himins og jarðar. — Þar
tryggði Jimmy -Durante hið
fræga nef sitt og Hitler einka-
flugvél sína. Jafnvel svæsnustu
kommúnistar hafa flúið á náð-
ir þessa arðránsfyrirtækis kapí-
talismanns og gert við það alls
konar samninga.
Mönnum finnst jafnvel dauð-
inn og skattarnir ekki eins ógn-
andi eftir að þeir hafa fórnað
nokkrum skildingum á altari
þessa skurðgoðs. Já, það má
með sanni segja, að það eigi
engan sinn líka.
Ef amerískt fyrirtæki óttast
að það lendi skyndilega í fjár-
hagsvandræðum, snýr það sér
til Lloyds og leitar eftir trygg-
ingu gegn tapi, því að geti
Lloyds það ekki, er varla í
annað hús að venda.
Ef þing
dregst á langinn.
Þannig var það, þegar Brook-
lyn Dodgers óttaðist, að það
gæti átt það á hættu, að að-
göngnjumiðar þess yrðu falsaðir.
Það ^neri sér auðvitað til
Lloyds með þetta vandamál sitt
og fékk þá tryggingu, sem um
var að ræða. Og svo rann upp
sá dagur, að falsaðir aðgöngu-
miðar komust í umferð og
streymdu inn. Félagið gerði óð-
ara skaðabótakröfu á hendur
Lloyds á grundvelli tryggingar-
samningsins og það stóð ekki á
Lloyds að greiða bæturnar —
98.000 dollara.
Árið 1952 tryggði sjónvarps-
fyrirtæki sig gegn því tjóni,
er það'yrði fyrir ef flokksþing-
um demókratá og republikana
lyki ekki á nákvæmlega réttum
tíma. Þing demókrata stóð ein-
um degi lengur en ætlað hafði
verið, og Lloyds borgaði.
Þótt nýbygging Lloyds, sú
hin mikla, er það hefur reist
við Leadenhallgötu, sé ólík
sautjándu aldar kaffistofunni
hans Edwards Lloyds, eru gaml-
ir siðir enn í heiðri haldnir þar.
Varðmennirnir, klæddir rauð-
um og svörtum búningum, kall-
ast enn „þjónar“ og svara því
kalli. í skipstjóraherberginu,
þar sem félagarnir hittast til að
bera saman bækur sínar, xúfja
upp endui’minningar um ævin-
týralega leit að týndum fjár-
sjóðum og annað því um líkt,
er enn boi’ið fram kaffi — hjá
’ Lloyds drekkur enginn te.
Fjöður stafur
enn í notkun.
í skránni yfir týnd skip, er
hinum minnstu fleytum ætlað
jafn mikið rúm og stærstu út-
hafsjötnum, og enn er notaður
fjöðurstafur við ritun skrár-
innar.
í stóra salnurn með marm-
ai’asúlunum, sem kallast „The
Room“ eða herbergið, stigur
kallarinn í ræðustólinn eins og
í garnla daga, er hann les áríð-
andi tilkynningar um siglingar.
Vátryggjendurnir sitja enn sem
fyrr í óhefluðum tréstúkum, því
þannig var það í gamla daga
og. þannig verður það á meðan
Lloyds er til.
Gestir, sem koma í TheRoom
og búast við að þar sé líkt um-
hoi’fs og í hinum nýtízkulegu
skrifstofusölum amerískra vá-
tryggingarfélaga, verða alveg
undrandi og skilja ekki, að
þarna skuli vera ys og þys, hróp
og sköll og að þetta skuli vei’a
hinar frægu menn, sem kalla
sig Lloyds.
Því var það, að kona ein, sem
kom þarna í heimsókn og gekk
upp að pöntunni, spurði þegar
hún leit í kringum sig: „Hvað
er þá Lloyds?“
Kallarinn, heiðursmaður að
nafni William Farrant, brosti
og svaraði hæglátlega: „Sem
einstaklingar erum við vátrygg-
ingamenn, en sameiginlega er-
um við Lloyds.“
Áhættan
dreifist á marga.
Lloyds, sem félag, gefur ekki
út váti-yggingarskíi’teini. Það
gera hinir einstöku umboðs-
menn upp á sitt eindæmi. Þeir
takta á sig áhættuna, meta hana
og borga tjónið ef til kemui*.
Stjórn Lloyds er laus í reip-
unum og líkist einna helzt
einkaklúbbi kaupsýslumanna,
en það er nefnd, sem setur regl-
ur og lítur eftir því, að með-
limur standi við skuldbinding-
ar sínar og verði ekki gjald-
þi’ota, þótt hann verði fyrir
miklu tjóni.
Styrkleiki Lloyds er fólginn
í því, að mikilli áhættu er dreift
á marga vátryggingamenn og
þess vegna er jafnvel hið gífur-
legasta tjón greitt án tafar.
Þegar eitt af póstskipum
Breta, Magdalena, fórst undan
Rio de Janeiro í jómfrúför sinni
1949, greiddi Lloyds 10 millj-
ónir dollara í tjónsbætur innan
tveggja vikna.
Fyllibýljir
valda.
Árið 1954 var vont ár fyi’ir
Lloyds. Fellibylurinn Carol og
systir hans kostuðu vátryggj-
endurna 112 milljónir dollara
í skaðabætur. Ein samtök, sem
í voru 15 váti’yggjendur, töp-
uðu 2,8 milljónum dollara af
völdum þessara náttúruham-
fara.
Þetta ár var líka slæmt fyrir
sjóváti-yggingarfélögin. — Hver
skiptapi er mikill harmleikur í
augum Lloydsmanna — harm-
leikur, sem þeir taka innilegan
þátt í. í skipaskrá Lloyds er
skipstjórinn ávallt nefndur
„master under God“. Þar eru
öll skip kölluð „good ships“,
góð skip og þeir tryggja þau
gegn tjóni af völdum „men-
Þetta er „The Room“, herbergið svo kallaða, þar sem tryggingarnar fara fram hjá Lloyds í
London. ,